Óheimilt að upplýsa um læknismeðferð
Tannlæknar mega ekki veita kortafyrirtækjum upplýsingar um hvaða læknisþjónustu þeir veita einstaklingum sem til þeirra leita. mbl.is/Árni Sæberg
Tannlæknum er óheimilt að veita kortafyrirtækjum upplýsingar um hvaða læknismeðferð einstaklingar fá hjá þeim þó að þeir fái kortalán vegna þjónustu á tannlæknastofu, skv. áliti Persónuverndar.
Tannlæknafélag Íslands spurði Persónuvernd hvort tannlæknar mættu afhenda kortafyrirtæki upplýsingar um kortalán vegna læknismeðferðar og afrit vörureikninga. Fram kom í bréfi Tannlæknafélagsins til Persónuverndar að Valitor hf. biðji tannlækna um undirrituð frumrit kortalánssamninga sem gerðir hafi verið í tengslum við meðferð og einnig afrit af vörureikningi.
Vörureikningar séu hins vegar jafnvel hluti sjúkraskrár „og á honum kemur fram hvaða meðferð er veitt svo þetta eru þá trúnaðargögn úr sjúkraskrám og finnst tannlæknum óþægilegt að verið sé að biðja um þessar upplýsingar enda eru tannlæknar bundnir trúnaði við skjólstæðinga sína,“ sagði í erindi félagsins til Persónuverndar.
Í umfjöllun Persónuverndar á heimasíðu hennar segir að Valitor hf. sé heimilt að fara fram á afrit kortalánssamninga vegna tannlæknaþjónustu, sem og þær upplýsingar á vörureikningum sem nauðsynlegar eru vegna innheimtu slíkra lána. Upplýsingar um hvaða þjónusta hefur verið veitt tilteknum einstaklingi megi hins vegar ekki senda fyrirtækinu.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 7. júlí 2011, Innlent Sendu viðkvæmar persónuupplýsingar í pósti
- Þriðjudagur, 22. mars 2011, Innlent Sendir röntgenfilmur til Guam
- Fimmtudagur, 10. mars 2011, Innlent Persónuvernd fylgist með gjaldeyriseftirlitinu
- Fimmtudagur, 21. júlí 2011, Innlent Mátti ekki skrá kennitölu
- Laugardagur, 14. janúar 2012, Innlent Kanna meðferð persónuupplýsinga
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































