Unnið að því að bjarga verðmætum

Árni Johnsen, þingmaður og formaður Þorláksbúðarfélagsins. stækka

Árni Johnsen, þingmaður og formaður Þorláksbúðarfélagsins. mbl.is/Ómar

„Við erum að klára þarna verk og við þurfum að bjarga verðmætum, og ljúkum því,“ segir Árni Johnsen, þingmaður og formaður Þorláksbúðarfélagsins, í samtali við mbl.is. Hann vill ekki tjá sig sérstaklega um ákvörðun Húsafriðunarnefndar að skyndifriða Skálholtskirkju og Skálholtsskóla.

Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður nefndarinnar, segir í samtali við mbl.is að þetta þýði að stöðva verði framkvæmdir við endurbyggingu Þorláksbúðar.

„Við erum að vinna okkar verk og erum að koma í veg fyrir að hlutir, sem búið er að setja mikla peninga í, skemmist ekki,“ bætir Árni við.

Fram hefur komið að endurbygging Þorláksbúðar sé í fullum gangi. Í gærkvöldi hófst vinna við að reisa grind hússins.

„Það er Fornleifavernd ríkisins sem hefur yfir rústum landsins að gera. Fornleifavernd  hefur svigrúm innan ákveðinnar fjarlægðar frá hverri rúst. Þessi rúst er búin að vera í aldir en Skálholtskirkja er 50 eða 60 ára gömul. Ég tel að Fornleifavernd, byggingarnefnd og kirkjuráð ráði þessu varðandi Þorláksbúð. Við erum ekki neitt að fást við Skálholtskirkju eða Skálholtsskóla,“ segir Árni.

Auk þess að skyndifriða Skálholtskirkju og Skálholtsskóla hefur Húsafriðunarnefnd einnig friðað nánasta umhverfi.

„Nánasta umhverfi er líka háð öðrum reglum. Þar býr fornleifaverndin við mjög ákveðnar reglur. Mig minnir að það séu 20 metrar frá hverri rúst, sem er þeirra valdsvið,“ segir Árni.

Aðspurður segist hann ekki vera búinn að fá tilkynningu frá nefndinni í tengslum við skyndifriðunina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Huang Nubo.

42% vilja að Huang fái að leigja

08:12 Ríflega fjórir af hverjum tíu Íslendingum vilja leyfa kínverska athafnamanninum Huang Nubo að leigja jörðina Grímsstaði á Fjöllum en tæpur þriðjungur er því mótfallinn, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Meira »
Guðrún Þóra Sigurðardóttir nýstúdent frá Kvennaskólanum.

Dúxinn fer í Hússtjórnarskólann

07:57 Nýstúdentinn Guðrún Þóra Sigurðardóttir er dúx frá Kvennaskólanum í Reykjavík en hún útskrifaðist á laugardaginn af náttúrufræðibraut skólans með 9,84 í lokaeinkunn. Er það hæsta einkunn á stúdentsprófi í sögu skólans. Meira »

Grjóthrun á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði

Grjót á veginum um Dynjandisheiði.
07:49 Talsvert grjóthrun varð um helgina, bæði á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Vegurinn á milli Þingeyrar og Flókalundar var á köflum mjög slæmur eftir miklar rigningar og grjóthrun um helgina og lentu einhverjir ökumenn í vandræðum vegna þess. Meira »

Umferðaróhapp á Hafnarfjarðarvegi

06:08 Umferðaróhapp varð laust eftir miðnætti á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú. Ökumaður var fluttur á slysadeild en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Grunur leikur á um ölvun við akstur. Meira »

Gríðarmikil óánægja með lokun útibúa

05:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst hafa orðið var við gríðarmikla óánægju á meðal sveitarstjórnarmanna vegna ákvörðunar Landsbankans um fækkun starfsstöðva. Meira »

Semja þarf um þingfrestunina

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir á forsetastóli.
07:33 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, kveðst þurfa að funda sem fyrst með þingflokksformönnum eftir eldhúsdagsumræður til að semja um þinglok. Hún segir að betra verði að meta framhaldið þegar atvinnuveganefnd hefur afgreitt sjávarútvegsfrumvörpin. Meira »

Repjuolía tilvalin á norðurslóðum

Repjuakur í blóma á Þorvaldseyri.
05:30 Brýnt er að aðrir orkugjafar en jarðdísilolía verði notaðir í skipasiglingum um norðurslóðir að sögn Jóns Bernódussonar, verkfræðings hjá Siglingastofnun, en brennsla hennar getur aukið á bráðnun íss á svæðinu. Meira »

Ótryggðir úti á túni

Vafi leikur á því í frumvarpinu hvort ökumenn sem lenda í umferðaróhappi á bílastæði væru ...
05:30 Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að slysatrygging ökumanns ökutækis verði takmörkuð frá því sem nú er og að hún gildi einungis í almennri umferð, þ.e. „á vegum sem opnir eru almenningi“. Tillaga þess efnis er í frumvarpi um ökutækjatryggingar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Loka þyrfti 15-20 hellum

Hellinum Jörundi hefur verið lokað fyrir allri umferð, bæði fyrir hellamönnum og öðrum, til að ...
05:30 Hellarannsóknafélag Íslands vill að 15-20 hellum á landinu verði lokað á næstu árum til að forða þeim frá skemmdum. Ef ekkert verði að gert skemmist hellarnir enn frekar. Um leið þurfi að huga að því að auðvelda aðgengi að þeim hellum sem hægt er að skoða án þess að valda skemmdum. Meira »

7.000 vinnustundir að baki

Á deildinni í Kópavogi verða átta rúm opin í sumar.
05:30 Að baki nýbyggingu við líknardeild í Kópavogi liggja nærri sjö þúsund vinnustundir en ljóst er að byggingin verður ekki tekin í notkun fyrr en í fyrsta lagi í haust sökum frekari sparnaðaraðgerða á Landspítalanum, sem fram hafa komið hjá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans. Meira »

Slitastjórn kannaði störf Pars Per Pars

05:30 Slitastjórn Glitnis lét kanna sérstaklega hvort tveir fyrrverandi lögreglumenn hefðu „stytt sér leið“ í störfum sínum fyrir slitastjórnina. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Lögreglan við eftirlit.
Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Kirkjugestir voru teknir til altaris.
Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingar í síma 8694479 og ...
Slökkvitæki á ótrúlegu verði
Vegna magninnkaupa bjóðum við nokkrar gerðir slökkvitækja á ótrúlegu verði í tak...
chuahua til sölu
ég er með tvo chuahua hunda til sölu tík og rakka þeir eru mjög ljúfir og góðir ...
Ertu með ristilkrabba á byrjunarstigi?
Eftir hægðir setur þú eitt Ez Detect prófblað í salernið. Ef ósýnilegt bl...
 
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...