Fá launaleiðréttingu í Noregi

Niðurstöðunni fagnað af pípulagningarmönnum
Niðurstöðunni fagnað af pípulagningarmönnum Af vef Samiðnar

Íslenskir pípulagningamenn sem starfa í Noregi á vegum íslensks undirverktaka, Pípulagnaverktaka ehf., við byggingarverkefni á Fornebu og fengu laun samkvæmt íslenskum launatöxtum, fá nú laun í samræmi við norska félaga sína eftir að niðurstaða komst í deilu á milli systursamtaka Samiðnar í Noregi (Fellesförbundet) f.h. starfsmannanna og Pípulagnaverktaka ehf. og annarra verktaka sem að verkinu stóðu, að því er fram kemur í frétt á vef Samiðnar.

Í lok september vöktu fjölmiðlar í Noregi athygli á málinu sem snérist um félagsleg undirboð íslenskra píplagningamanna sem starfa í Noregi og launakjör þeirra, en að mati félaganna samræmdist launasamsetning íslenska verktakafyrirtækisins ekki norskum lögum.  

Félag iðn- og tæknigreina (FIT), sem flestir starfsmennirnir eru aðilar að, leitaði til Samiðnar eftir aðstoð við að finna ásættanlega úrlausn á málinu fyrir starfsmennina.

Trúnaðarmenn FIT hjá Pípulagnaverktökum í Noregi voru virkjaðir og leitað aðstoðar hjá Fellesförbundet.

Trúnaðarmennirnir áttu síðan marga fundi með lögmönnum og fulltrúum fyrirtækisins í Noregi og norska vinnueftirlitinu, sem og fulltrúum FIT og Samiðnar hér á Íslandi. 

Að lokum leiddu þessar viðræður til þess að nú hefur verið skrifað undir samning sem tryggir að starfsmenn Pípulagnaverktaka í Norgi fá nú 200-220 norskar krónur á tímann í dagvinnu.  (4.100-4.500 íslenskar krónur). Verða kjör þeirra leiðrétt aftur í tímann.

„Líkur eru á að niðurstaða málsins verði öðrum íslenskum verktakafyrirtækjum sem starfa eða hyggja á starfsemi í Noregi víti til varnaðar því félagsleg undirboð líða stéttarfélögin ekki enda minnir þetta mál um margt á vandamál sem við Íslendingar þekkjum frá þenslutímabilinu hér á landi þegar verktakafyrirtæki réðu til sín erlenda starfsmenn á mun lægri kjörum en hér tíðkuðust," segir á vef Samiðnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert