Um fimmtíu óþreyttir leitarmenn eru í þann mund að hefja leit á og við Sólheimajökul en þeir sem leitað hafa stöðugt frá því morgun fá nú verðskuldaða hvíld. Eitthvað hefur rofað til á svæðinu og er þyrla Landhelgisgæslunnar á leið í loftið.
Björgunarsveitafólk frá öllum landshlutum hefur drifið að svæðinu í allan dag og taka hátt í 400 manns þátt í aðgerðunum. Leitað er að hálfþrítugum sænskum ferðamanni sem hefur verið týndur frá því í gærkvöldi en bifreið mannsins fannst seinnipart dags við rætur jökulsins.
Rauði krossinn hefur séð um að útvega leitarfólki og öðrum aðstandendum aðgerðanna mat og gistingu og heimamenn hafa ekki látið sitt eftir liggja í að rétta fram hjálparhönd, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli.
Aðstæður hafa verið erfiða og veðrið hefur verið slæmt. En menn eygja nú von um að eitthvað sé að rofa til og gerir Landsbjörg ráð fyrir að leitað verði áfram fram eftir nóttu.
„Þar er gríðarlega sprunginn skriðjökull, mikið af svelgjum og sprungum. Leitarmenn þurfa að vera á mannbroddum og með ísaxir. Menn þurfa að fara mjög varlega því þetta er hættulegt,“ sagði Kristinn. Hann sagði að svona jökull yrði seint leitaður til fulls. Til þess þyrfti að síga í hverja sprungu og svelg sem tæki langan tíma.
Rauði kross Íslands hefur séð um að björgunarfólk fái að borða og útvegað gistingu fyrir þá sem þurfa á hvíld að halda. Eigendur hótela og gistiheimila í nágrenninu hafa opnað dyr sínar í þessum tilgangi.