Taka aspir niður við ráðhúsið

Ráðhúsið
Ráðhúsið mbl.is / Hjörtur

Búast má við þrengingum í Vonarstræti næstu daga en lögreglan segir aspir sem eru á móts við ráðhús Reykjavíkur verða teknar niður á næstu dögum. Önnur akrein Vonarstrætis verður því lokuð vegna þessa.

Umferðarstofa hvetur ökumenn því til sérstakrar aðgæslu enda sé þarna töluverð umferð gangandi og hjólandi vegfarenda. Því sé full ástæða til að vera með athyglina í lagi. Búast má við þrengingum vegna þessa í Vonarstræti næstu daga.

Aspir við Ráðhús Reykjavíkur.
Aspir við Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert