Fagna framboði Hönnu Birnu

Merki Landssambands Sjálfstæðiskvenna.
Merki Landssambands Sjálfstæðiskvenna.

Stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna hefur sent frá sér ályktun þar sem framboði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til formanns Sjálfstæðisflokksins er fagnað. Er í ályktuninni bent á að Hanna Birna sé fyrsta konan sem bjóði sig fram til formanns í 82 ára sögu flokksins.

Eftirfarandi er ályktun LS:

„Landssamband sjálfstæðiskvenna fagnar framboði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til formanns Sjálfstæðisflokksins. Hanna Birna er fyrsta konan sem býður sig fram til formanns í 82 ára sögu flokksins. Hún er sterkur leiðtogi en það hefur hún meðal annars sýnt með störfum sínum sem borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hanna Birna hefur með hugrekki sínu og hugsjónum haft kjark til að breyta stjórnmálunum í borginni og náð góðum árangri í að sætta ólík sjónarmið og fá fólk til að vinna saman að góðum málefnum fyrir íbúa borgarinnar. Sjálfstæðiskonur binda miklar vonir við Hönnu Birnu og telja að framboð hennar muni efla traust á Sjálfstæðisflokknum og auka veg hans. Þá hvetur Landssambandið konur til að bjóða sig fram til áhrifa á vettvangi stjórnmálanna.“

Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert