Ferðamaðurinn enn ófundinn

Leitarmenn á Fimmvörðuhálsi í gær
Leitarmenn á Fimmvörðuhálsi í gær mynd/Kristinn Ólafsson

Leit að sænska ferðamanninum sem saknað er hefur enn engan árangur borið. Um 220 björgunarsveitamenn eru nú við leit við Sólheimajökul og þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á flugi yfir leitarsvæðinu.  Veður til leitar er enn þokkalegt og útlit fyrir að verra veður, sem spáð var um hádegisbil, verði seinna á ferðinni.

Ólöf Snæhólm Baldursdóttir hjá Landsbjörgu segir sporin sem fundust í nótt ekki hafa leitt til neins en leit sé haldið áfram á jöklinum sjálfum.

Aðstæður til leitar á Sólheimajökli eru erfiðar, hann er háll, sprunginn og töluvert er um hættulega svelgi. Aðeins fólk sem vant er aðstæðum á jökli er í því verkefni. Annað leitarfólk, þar með talið átta hundateymi, kembir nú svæðið umhverfis jökulinn.

Ólíklegt er talið að sá týndi hafi verið með búnað til að fara langt inn á jökul en samkvæmt Landsbjörg er alþekkt að týnt fólk finnist langt frá þeim stöðum sem það telur sig vera á.

Fjöldi björgunarmanna er í hvíld eftir að hafa leitað í alla nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert