Lítill verðmunur í Bónus og Krónunni

Aðeins 175 kr. verðmunur var á milli Bónuss og Krónunnar eða 1% þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á matarkörfunni í lágvöruverðsverslunum og þjónustuverslunum síðastliðinn þriðjudag.

Að sögn ASÍ var innan við 2 króna verðmunur á milli verslunarkeðjanna tveggja í  meira en helmingi tilvika.

Matarkarfan var ódýrust hjá Bónus þar sem að hún kostaði 16.596 krónur en dýrust hjá Samkaupum-Úrvali á 19.816 krónur sem er 3.220 króna verðmunur eða 19%. Næstdýrasta karfan að þessu sinni var hjá Nóatúni, 19.514 krónur, en lítill verðmunur var á þeim og Samkaupum-Úrvali eða 1%.

6% verðmunur var á matarkörfunni á milli Nettós og Bónuss og 7% verðmunur var á Víði og Bónus. En aðeins 1% verðmunur var á milli Nettós og Víðis eða 198 kr. en matarkarfan kostaði 17.604 krónur hjá Nettó og 17.802 krónur hjá Víði.

Verðkönnun ASÍ

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert