Ölvaður velti stolnum bíl

mbl.is / Hjörtur

Alls voru sjö teknir fyrir ölvun við akstur í Reykjavík í nótt. Einn þessara sjö lenti í bílveltu í nótt og þegar lögregla fór að athuga málið kom í ljós að maðurinn var á stolnum bíl. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslum lögreglu.

Nokkuð var um ölvun og óspektir í Reykjavík í nótt og eru fangageymslur fullar eftir nóttina að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert