Hljóta að vakna pólitískar spurningar

Vigdís Hauksdóttir. stækka

Vigdís Hauksdóttir. mbl.is/Ómar

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gaf til kynna á Alþingi í dag að ættingjar fjármálaráðherra ættu hagsmuna að gæta í tengslum við kaup ríkisins á jarðhitaauðlind á jörðunum Junkaragerði og Kalmannstjörn á Reykjanesi og að pólitískar spurningar hlytu að vakna.  Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra sagði að þetta væri ósæmilegur málflutningur og Alþingi til skammar ef ekki væri beðist afsökunar á honum.

Vigdís sagði að Hitaveita Suðurnesja og sveitarfélögin á Suðurnesjum hefðu gert með sér samkomulag árið 1999 um að hitaveitan myndi kaupa af sveitarfélögunum það land og jarðhitaréttindi, sem fylgdu landspildu, sem sveitarfélögin höfðu áður keypt af Oddi Ólafssyni og Katli Ólafssyni með kaupsamningi árið 1976. Um hafi verið að ræða landspildu úr jörðunum báðum upp á 63-70 hektara og borgað var fyrir það 63 milljónir króna. 

„Þar með afhentu þessir aðilar endurgjaldslaus afnot af því svæði sem á er minnst," sagði Vigdís.  Sagði hún að systir fjármálaráðherra og mágur hans ættu 16,46% í sitthvorri jörðinni. „Því hljóta að vakna hér upp pólitískar spurningar þegar afgreiða á fjáraukalög í dag, hvaða hagsmuni er verið að vernda. Er verið að kaupa heim réttindi, er þetta svipað og að ekki megi leggja veg fyrir vestan vegna þess að þrír sumarbústaðaeigendur neita að afhenda Teigsskóg til vegagerðar," spurði Vigdís.

Ósæmilegur málflutningur

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði að þótt hann hefði ýmislegt upplifað á Alþingi þá væri langt seilst nú. Vigdís hefði dylgjað að því, að hann væri í viðskiptum við venslamenn sína. Það væri hins vegar heppilega fyrir alla, ekki síst Vigdísi, að hún vissi hvað hún væri að tala um áður en hún reyndi fyrir opnum tjöldum að hafa æruna af félögum sínum  á grundvelli misskilnings, ónógra upplýsinga eða tilrauna til vísvitandi blekkinga.

„Hið rétta er að ríkið er að kaupa af Reykjanesbæ tilteknar spildur úr jörðunum Kalmannstjörn og Junkaragerði, sem löngu höfðu verið seldar. Viðskiptin eru alfarið milli ríkisins og Reykjanesbæjar og eignarhald á jörðunum að öðru leyti er algerlega óskylt mál," sagði Steingrímur.

Hann sagðist ekki kær sig um afsökunarbeiðni frá Vigdísi Hauksdóttur „en ég fer fram á það að háttvirtur þingmaður biðji alsaklaust venslafólk mitt (...) og aðra eigendur jarðanna Kalmannstjarnar og Junkaragerðis afsökunar. Þetta er ósæmilegur málflutningur og Alþingi til skammar ef ekki er umsvifalaust beðist afsökunar á að bera slíkt á borð," sagði Steinrímur.

Vigdís bað ekki um orðið til að svara. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Ísafjörður.

Vilja flýta Dýrafjarðargöngum

08:15 Bæjarfulltrúar í Ísafjarðarbæ sameinuðust um bókun á síðasta bæjarstjórnarfundi, þar sem tekið er undir kröfu þúsunda Vestfirðinga um að flýta gerð Dýrafjarðarganga, sem fram kom í undirskriftum sem afhentar voru Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra nýlega. Meira »
Huang Nubo.

42% vilja að Huang fái að leigja

08:12 Ríflega fjórir af hverjum tíu Íslendingum vilja leyfa kínverska athafnamanninum Huang Nubo að leigja jörðina Grímsstaði á Fjöllum en tæpur þriðjungur er því mótfallinn, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Meira »

Dúxinn fer í Hússtjórnarskólann

Guðrún Þóra Sigurðardóttir nýstúdent frá Kvennaskólanum.
07:57 Nýstúdentinn Guðrún Þóra Sigurðardóttir er dúx frá Kvennaskólanum í Reykjavík en hún útskrifaðist á laugardaginn af náttúrufræðibraut skólans með 9,84 í lokaeinkunn. Er það hæsta einkunn á stúdentsprófi í sögu skólans. Meira »

Semja þarf um þingfrestunina

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir á forsetastóli.
07:33 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, kveðst þurfa að funda sem fyrst með þingflokksformönnum eftir eldhúsdagsumræður til að semja um þinglok. Hún segir að betra verði að meta framhaldið þegar atvinnuveganefnd hefur afgreitt sjávarútvegsfrumvörpin. Meira »

Repjuolía tilvalin á norðurslóðum

Repjuakur í blóma á Þorvaldseyri.
05:30 Brýnt er að aðrir orkugjafar en jarðdísilolía verði notaðir í skipasiglingum um norðurslóðir að sögn Jóns Bernódussonar, verkfræðings hjá Siglingastofnun, en brennsla hennar getur aukið á bráðnun íss á svæðinu. Meira »

Grjóthrun á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði

Grjót á veginum um Dynjandisheiði.
07:49 Talsvert grjóthrun varð um helgina, bæði á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Vegurinn á milli Þingeyrar og Flókalundar var á köflum mjög slæmur eftir miklar rigningar og grjóthrun um helgina og lentu einhverjir ökumenn í vandræðum vegna þess. Meira »

Umferðaróhapp á Hafnarfjarðarvegi

06:08 Umferðaróhapp varð laust eftir miðnætti á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú. Ökumaður var fluttur á slysadeild en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Grunur leikur á um ölvun við akstur. Meira »

Gríðarmikil óánægja með lokun útibúa

05:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst hafa orðið var við gríðarmikla óánægju á meðal sveitarstjórnarmanna vegna ákvörðunar Landsbankans um fækkun starfsstöðva. Meira »

Ótryggðir úti á túni

Vafi leikur á því í frumvarpinu hvort ökumenn sem lenda í umferðaróhappi á bílastæði væru ...
05:30 Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að slysatrygging ökumanns ökutækis verði takmörkuð frá því sem nú er og að hún gildi einungis í almennri umferð, þ.e. „á vegum sem opnir eru almenningi“. Tillaga þess efnis er í frumvarpi um ökutækjatryggingar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Slitastjórn kannaði störf Pars Per Pars

05:30 Slitastjórn Glitnis lét kanna sérstaklega hvort tveir fyrrverandi lögreglumenn hefðu „stytt sér leið“ í störfum sínum fyrir slitastjórnina. Meira »

Loka þyrfti 15-20 hellum

Hellinum Jörundi hefur verið lokað fyrir allri umferð, bæði fyrir hellamönnum og öðrum, til að ...
05:30 Hellarannsóknafélag Íslands vill að 15-20 hellum á landinu verði lokað á næstu árum til að forða þeim frá skemmdum. Ef ekkert verði að gert skemmist hellarnir enn frekar. Um leið þurfi að huga að því að auðvelda aðgengi að þeim hellum sem hægt er að skoða án þess að valda skemmdum. Meira »

7.000 vinnustundir að baki

Á deildinni í Kópavogi verða átta rúm opin í sumar.
05:30 Að baki nýbyggingu við líknardeild í Kópavogi liggja nærri sjö þúsund vinnustundir en ljóst er að byggingin verður ekki tekin í notkun fyrr en í fyrsta lagi í haust sökum frekari sparnaðaraðgerða á Landspítalanum, sem fram hafa komið hjá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Kirkjugestir voru teknir til altaris.
Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Lögreglan við eftirlit.
Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Viking 1706 Fellihýsi til sölu
Er með vel farið Viking fellihýsi 2000 árgerð til sölu, 8,5 fet. Skoðað 2013. He...
Gervigrasskór nr 29
Hef til sölu Nike Tiempo gervigrasskó nr. 29. Notaðir eingöngu síðasta sumar. Sv...
Vatnshitakútur Óskast
óska eftir ca 50 líta vatnshitakút í sumarhús, sem helst gæti passað á bak við h...
2010 TOYOTA LANDCRUSIER GX
Toyota Landcrusier 150 GX. Sjsk. Diesel, Ekinn 36.000. 2010 árgerð. Fallegur o...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...