Dæmd fyrir fjárdrátt

Héraðsdómur Reykjaness. stækka

Héraðsdómur Reykjaness. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kona sem starfaði sem bókari og gjaldkeri á fasteignasölu var í dag dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt í Héraðsdómi Reykjaness.

Krafðist fasteignasalan þess að konan greiddi rúmar 6 milljónir króna í skaðabætur en ekki var dæmt í þeim hluta málsins þar sem konan og fasteignasalan hafa komist að samkomulagi um greiðslu skaðabóta.

Konan játaði brot sín en á árunum 2007 og 2008 dró hún sér fé af reikningum fasteignasölunnar, notaði kreditkort hennar í heimildarleysi og tók út vörur víða í nafni fasteignasölunnar.

Bar fyrir sig erfiða æsku og að aðrir hafi hagnast á brotunum

Konan sem er fædd árið 1975 hefur ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi. Þar sem hún hefur skýlaust játað brot sín og samþykkt að greiða skaðabætur er það virt henni til málsbóta. Til refsiþyngingar horfir að konan dró sér mikla fjármuni og brotin ná yfir langt tímabil. Ekki er fallist á með konunni að aðstæður hennar, erfiðleikar í æsku og erfitt heimilislíf undanfarin ár, hafi áhrif til refsilækkunar.

Þá segir konan að hún hafi ekki ein hagnast af brotunum heldur hafi félag sem eiginmaður hennar átti og starfsfélagi hans notið ágóða af þeim, en ekki með vitund þeirra. Einnig segir konan að mál þetta hafi haft mikil áhrif á líf hennar, m.a. hafi hún flutt úr landi. Að mati dómsins getur þetta ekki haft áhrif á refsiákvörðun í máli þessu.

Með vísan til alls framangreinds og dómaframkvæmdar þykir refsing konunnar hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði. Við ákvörðun þess hvort refsingin verði bundin skilorði ber að líta til þess að hún hefur ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi og óútskýrður dráttur var á rannsókn málsins, en kæra var lögð fram 14. nóvember 2008 og ákæra gefin út 12. apríl 2011. Verður refsing konunnar því bundin skilorði, segir í niðurstöðu héraðsdóms.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til leigu 2-4 m sumarhús í Hvalfirði
Vel búin, gasgrill og heitur pottur. Frábært útsýni. Fjölbreytt afþreying í nágr...
Freon - Kælimiðlar - 15 ára reynsla
Eigum allar helstu gerðir af kælimiðlum á lager. Beinn innflutningur frá sama fr...
DÖMU MOKKASÍUR
Teg. 5011 Mjúkar og þægilegar dömu mokkasíur úr leðri, skinnfóðraðar. - Litur: S...
FÖNDURSETT Í ÚRVALI
Föndursett í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid...
 
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...