Fíkniefnabrotum fjölgar en innbrotum fækkar
Fíkniefnabrotum fjölgaði mest á milli áranna 2011 og 2009, en innbrotum fækkaði hins vegar verulega. Þetta kemur fram í skýrslu frá embætti ríkislögreglustjóra.
Færri hegningarlagabrot voru skráð í október borið saman við árið á undan og árið 2009. Umferðarlagabrotum hefur fækkað í október frá árinu 2009 til 2011. Þau voru 6.088 2009 en 1.412 árið 2011. Þessa fækkun má að hluta til rekja til bilana í stafrænum hraðamyndavélum.
Sveiflur eru í þróun fíkniefnabrota milli ára en flest voru þau í október 2009 eða 146. Tölur fyrir árin 2009 og 2010 eru staðfestar tölur en bráðabirgðatölur fyrir árið 2011.
Skráð hegningarlagabrot í október á þessu ári voru 1.141 sem er tæp 4% færri brot en skráð voru í september. Samanburður á fjölda brota í október 2011 við sama tímabil árið 2010 sýnir að þeim hefur fækkað um 17%. Alls voru 10.491 hegningarlagabrot skráð fyrstu tíu mánuði ársins. Smásveifla er í þróun hegningarlagabrota milli mánaða en að meðaltali hafa þau verið tæp 35 brot á dag það sem af er árinu 2011.
Þegar borinn er saman fjöldi brota frá janúar til október milli áranna 2010 og 2011 má sjá að fækkun hefur orðið í öllum brotaflokkum, að undanskildum fíkniefnabrotum en þeim fjölgaði um tæp 17%. Mest fækkaði innbrotum eða um tæp 36% og næstmest hraðakstursbrotum eða um tæp 35%. Fjöldi líkamsárása er sveiflukenndur en milli áranna 2010 og 2011 fækkaði þeim um 9%. Minnst fækkaði brotum er falla undir ölvun við akstur eða um 6%. Niðurstöður hlutfallsbreytinga milli áranna 2009 og 2011 sýna að innbrotum fækkaði mest eða um tæp 49% en þar fækkaði líkamsárásum minnst eða um 7%. Mest fjölgaði fíkniefnabrotum eða um tæp 40%.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. september 2011, Innlent Auðgunarbrotum fækkar milli ára
- Laugardagur, 17. september 2011, Innlent Innbrotum fækkað en fíkniefnabrotum fjölgað
- Fimmtudagur, 15. desember 2011, Innlent Færri brugga ólöglega en í fyrra
- Föstudagur, 17. febrúar 2012, Innlent Brotum fjölgar milli ára
- Mánudagur, 16. janúar 2012, Innlent Færri teknir fyrir ölvunarakstur
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































