Mótmæla lokun Sogns
Bæjarráð Hveragerðisbæjar mótmælir harðlega ákvörðun um niðurlagningu Réttargeðdeildarinnar að Sogni og flutning starfseminnar á Klepp. Þetta kemur fram í ályktun bæjarráðs sem allir bæjarfulltrúar samþykktu á fundi í dag.
„Öll áform um sóknaráætlun Íslands 20/20 til eflingar atvinnulífs og lífsgæða í öllum landshlutum hljóma í besta falli hjákátlega í eyrum Sunnlendinga þegar yfir dynja einhliða ákvarðanir sem valda því að yfir 30 manns munu missa vinnuna í samfélagi sem telur 1900 manns.
Miðað við fólksfjölda samsvarar slík uppsögn því að 1800 manns myndu missa vinnunna í Reykjavíkurborg á einu bretti. Sunnlendingar gera þá kröfu að faglega sé staðið að ákvörðunum og að vinnubrögð séu vandaðri en hér virðist vera raunin. Árangur starfseminnar að Sogni hefur verið afar góður en þaðan hafa 44 vistmenn útskrifast á þeim 20 árum sem réttargeðdeildin hefur verið starfrækt. Enginn af þeim hefur brotið af sér eftir útskrift. Þetta hljóta að teljast bestu meðmæli sem völ er á með starfsemi af þessum toga.
Yfirmenn Landsspítala hafa farið mikinn í umræðunni undanfarnar vikur og ljóst er að einskis verður látið ófreistað til að draga til Reykjavíkur alla heilbrigðisþjónustu sem mögulegt er að soga af landsbyggðinni. Er það sú stefna sem við Íslendingar viljum búa við?
Bæjarráð Hveragerðisbæjar hvetur ráðherra Velferðarmála til að endurskoða umrædda ákvörðun. Í kjölfarið verið gerð fagleg úttekt óháðra aðila á kostum og göllum þess að réttargeðdeildin verði áfram staðsett að Sogni. Víðtækt samráð verði haft við þá aðila sem ákvörðunin snertir og málið verði unnið af þeirri fagmennsku sem lagt er upp með í Sóknaráætlun 20/20 en ekki eftir gerræðislegum geðþóttaákvörðunum einstakra starfsmanna ríkisins," segir í ályktun bæjarráðs.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 14. október 2011, Innlent 44 útskrifaðir af 50 á Sogni
- Miðvikudagur, 29. febrúar 2012, Innlent Ný réttargeðdeild á Kleppi
- Föstudagur, 2. desember 2011, Innlent Vilja fresta flutningi á Klepp
- Laugardagur, 4. desember 2010, Innlent Mótmæla niðurskurði til heilsustofnunar NLFÍ
- Miðvikudagur, 12. október 2011, Innlent Réttargeðdeildinni að Sogni lokað
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































