Fyrsta verk að lækka skatta
Ólöf Nordal, Bjarni Benediktsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir á landsfundi Sjálfstæðisflokksins mbl.is/Golli
Fyrsta verkefni Sjálfstæðisflokksins þegar hann kemst til valda er að lækka skatta. Þetta sagði Ólöf Nordal, varaformaður flokksins, í fyrirspurnartíma á landsfundi. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, tók heilshugar undir orð Ólafar.
Farið var um víðan völl í fyrirspurnartímanum þó svo fyrirspurnir hafi látið á sér standa í upphafi. Meðal þess sem þau Bjarni, Ólöf og Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður, voru spurð út í voru Evrópumál, gjaldmiðilsmál, skattamál, skuldaniðurfelling, flugvöllurinn í Reykjavík og landakaup útlendinga.
Hvað Evrópumálin varðar þá árétti forystan í heild sinni sína afstöðu, sem er í takt við ályktun síðasta landsfundar, þ.e. að Íslandi sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Ragnheiður Elín lýsti því að hún vill að viðræðum verði slitið og Ólöf sagði trúverðugleika Íslands í hættu með viðræðunum. Þau voru þó sammála um að tímabært væri að fara upp úr skotgröfunum þegar kemur að umræðu um aðild að ESB og viðræðurnar.
Meðal annars kom sú spurning upp hvers vegna í drögum að ályktum um Evrópumál sem liggur fyrir landsfundinum væri ekki að finna staf um að Sjálfstæðisflokkurinn vilji slíta viðræðunum. Bjarni benti á að þetta hefði verið niðurstaða nefndar en geti vissulega tekið breytingum í meðförum fundarins.
Þegar kom að Reykjavíkurflugvelli voru þau einnig á sama máli, hann eigi að vera í Reykjavík. Ragnheiður Elín tók þó fram að ef Reykvíkingar vilji ekki flugvöllinn séu Keflvíkingar tilbúnir að taka við innanlandsfluginu.
Og Bjarni fékk að svara fyrir landakaup útlendinga. Hann sagði það hafa verið stóra ákvörðun fyrir litla þjóð þegar heimildin tók gildi um að allir innan EES hafi heimild til að kaupa hér jarðir. Hann sagðist vissulega vilja sjá þá uppbyggingu sem boðuð hefur verið á Grímsstöðum en að hann hafi þó efasemdir um söluna. Bjarni vill heildarendurskoðun á regluverkinu því útlit sé fyrir aukinni ásókn í íslenskar jarðir frá Asíu. Því megi ekki setja fordæmi sem geti komið í bakið á okkur síðar. Þá sé fráleitt að ákvörðunin fari eftir geðþótta einstaka ráðherra.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Helgi Björgvinsson Og á hverjum ætli Sjálfstæðismenn drífi sig að lækka skatta? -
Hörður B Hjartarson Vel getur verið að við - hér á Fróni -
Haraldur Haraldsson Fyrsta verk að lækka skatta/ alla vega a ´þa tekjulægstu ...
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 19. nóvember 2011, Innlent Útsending frá ræðum frambjóðenda
- Laugardagur, 17. mars 2012, Innlent Sjálfstæðismenn byrjaðir í baráttu
- Laugardagur, 19. nóvember 2011, Innlent Halldór í framboð til varaformanns
- Sunnudagur, 20. nóvember 2011, Innlent Björn og Friðrik hjuggu á hnútinn
- Þriðjudagur, 15. nóvember 2011, Innlent Pétur styður Hönnu Birnu
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































