Var boðið skutl og svaraði með kjaftshöggi

mbl.is/Hjörtur

Mjög ölvaður maður lét illa við verslun 10-11 við Laugalæk um klukkan þrjú í nótt og var haft samband við lögreglu vegna hans. Þegar lögreglan mætti á staðinn bauð hún manninum að aka honum heim en hann svaraði þá með því að kýla annan lögreglumanninn í andlitið.

Fyrir vikið var manninum ekki ekið heim heldur gistir nú fangageymslur lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert