Vilja lækka hámarkshraða
Vegagerðin stefnir á að þvera Mjóafjörð í fjarðarmynninu. Það styttir leiðina. mbl.is/Helgi Bjarnason
Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun þrýsta mjög á Vegagerðina að gera ráð fyrir lækkuðum hámarkshraða við hönnun nýs Vestfjarðavegar um Litlanes í Múlasveit. Þannig væri hægt að draga úr áhrifum framkvæmdarinnar á umhverfið. Vegagerðin telur það hins vegar auka hættu á slysum.
Vegagerðin er að undirbúa lagningu nýs kafla á Vestfjarðavegi nr. 60 frá Eiði í Vattarfirði, um Kerlingafjörð og Mjóafjörð að Þverá í Kjálkafirði. Vegurinn er í Reykhólahreppi og Vesturbyggð.
Núverandi vegur er gamall malarvegur, liðlega 24 km að lengd. Nýi vegurinn verður 16 eða 19 km langur, eftir því hvaða leið verður farin, og styttist því um 5 til 8 kílómetra.
Vegagerðin sendi matsskýrslu til Skipulagsstofnunar 13. október sl. Skipulagsstofnun hefur fjórar vikur til að gefa álit sitt. Sá tími er nú liðinn og hefur Vegagerðin birt matsskýrsluna á vef sínum.
Áformað hefur verið að bjóða veginn út að hluta fyrir áramót, náist að ljúka undirbúningi, og vinna verkið á næstu tveimur til þremur árum. Kostnaður er áætlaður 3,2 milljarðar kr.
Þrengsli á Litlanesi
Vegagerðin ber einkum saman tvær veglínur, A og B. Þær falla saman nema á tveimur köflum. Vegagerðin leggur til að farin verði sú leið að þvera Mjóafjörð í fjarðarmynninu, en ekki í botni hans, og að fara utar á Litlanesi.
Afar þröngt er um lagningu vegar um Litlanes og hefur framkvæmdin í för með sér röskun á fjörum og landi sem er friðað samkvæmt lögum.
Vegagerðin hefur hannað veg sem verður með bundnu slitlagi og uppbyggður með tilliti til snjóa. Hann verður miðaður við 90 km hámarkshraða.
Fram kemur í matsskýrslunni að Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun hafa í þeim miklu samskiptum sem verið hafa við gerð matsskýrslunnar þrýst á Vegagerðina að athuga möguleika á hönnun vegar sem skerðir umhverfið á Litlanesi minna en veglínur Vegagerðarinnar. Sérstaklega er bent á þann möguleika að hanna veginn með tilliti til 70 km hámarkshraða en ekki 90 eins og annars er á veginum. Beygjur yrðu krappari en það myndi draga úr áhrifum framkvæmdarinnar.
Telur Vegagerðin ekki rétt að lækka hámarkshraða þarna. Vegurinn verði óöruggur og meiri hætta á umferðarslysum. Vísar Vegagerðin í því efni til þess að erfitt verði að fylgjast með því að ökumenn dragi úr hraða á þessum stutta kafla, þar sem 100 kílómetrar eru á milli mannabyggða.
Bloggað um fréttina
-
Þorgeir Samúelsson Skrifræðis báknið og sérfræðingarnir -
Gunnar Th. Gunnarsson Klækir nátturuverndarsamtaka -
Ómar Ragnarsson Kílómetrar og mínútur. -
Jón Örn Arnarson Náttúruumhverfisskipulag? -
Skúli Víkingsson Vantar kort -
Haraldur Haraldsson Vilja lækka hámarkshraða!!!!!!!!!!!!!!
Innlent »
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
- Forstjóra FME sagt upp störfum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 12. júlí 2011, Innlent Í viðbragðsstöðu til þess að brúa bilið
- Sunnudagur, 4. september 2011, Innlent Milljón manns um Þingvelli
- Þriðjudagur, 23. nóvember 2010, Innlent Framkvæmdir hafa neikvæð áhrif á fuglalíf
- Mánudagur, 11. júlí 2011, Innlent Bráðabirgðabrúin vestar en gamla brúin
- Miðvikudagur, 16. nóvember 2011, Innlent Vinna matsáætlun allra leiða nema B
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina




































