Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu velferðarráðherra um að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót. Óskert desemberuppbót til þeirra sem eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verður 63.457 krónur.

Heildarútgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna þessa eru áætluð 600-650 milljónir króna. Desemberuppbætur voru jafnframt greiddar úr Atvinnuleysistryggingasjóði árið 2010 en slíkar uppbætur höfðu þá ekki verið greiddar úr sjóðnum frá því í desember 2005.

Þetta kemur fram á vefsíðu velferðarráðuneytisins. Þar segir að ákvörðun um desemberuppbót til atvinnuleitenda sé í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem gefin var út í tengslum við kjarasamninga í vor, um að lífeyrisþegar og atvinnuleitendur skuli njóta hliðstæðra kjarabóta og samið var um á almennum vinnumarkaði. Er þar um að ræða 48.457 kr. desemberuppbót auk 15.000 álags líkt og samið hefur verið um á almennum vinnumarkaði.

Rétt á desemberuppbót eiga atvinnuleitendur sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hafa staðfest atvinnuleit einhvern tíma á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2011.

Óskerta desemberuppbót, 63,457 kr., fá þeir sem hafa staðfest atvinnuleit á umræddu tímabili, hafa verið samtals tíu mánuði skráðir á atvinnuleysisskrá árið 2011 og eiga rétt á óskertum grunnatvinnuleysisbótum

Þeir atvinnuleitendur sem hafa á árinu 2011 verið skráðir á atvinnuleysisskrá í skemmri tíma en samtals tíu mánuði og/eða hafa verið tryggðir hlutfallslega á tímabilinu munu fá greidda desemberuppbót í hlutfalli við það.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert