Fjölmargar athugasemdir við ríkisreikning
Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um framkvæmd og niðurstöður fjárhagsendurskoðunar hjá ríkinu fyrir árið 2010. Fjallað er um fjölmargar athugasemdir sem stofnunin gerði við bókhald, reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins og bent á leiðir til úrbóta.
Í skýrslunni Endurskoðun ríkisreiknings 2010 er megináhersla lögð á þær athugasemdir sem Ríkisendurskoðun gerði við bókhald, reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins og bent á ýmsar leiðir til úrbóta. M.a. er vakin athygli á því að einkafyrirtæki og sveitarfélög færi svokallaða varanlega rekstrarfjármuni til eignar og fyrni þá síðan árlega en hjá ríkinu séu slíkir fjármunir gjaldfærðir að fullu á kaupári.
Leggur til breytingar á reikningskilareglum
Ríkisendurskoðun leggur til að reikningsskilareglum verði breytt á þann veg að varanlegir rekstrarfjármunir verði eignfærðir hjá ríkinu og síðan fyrndir á sama hátt og hjá einkafyrirtækjum og sveitarfélögum. Þá leggur stofnunin til að komið verði á fót miðlægri innri endurskoðunardeild á vegum framkvæmdarvaldsins og að dregið verði úr svokölluðum „opnum heimildum“ í fjárlögum en það eru útgjaldaheimildir sem ekki fela í sér hámarksfjárhæðir.
Samkvæmt lögum er Ríkisendurskoðun falið að endurskoða ríkisreikning og reikninga stofnana, fyrirtækja, sjóða og hlutafélaga í eigu ríkisins. Regluleg fjárhagsendurskoðun er viðamesta verkefni stofnunarinnar en um helmingur starfsmanna sinnir því. Gerð er grein fyrir framkvæmd og niðurstöðum þessarar vinnu í árlegri skýrslu til Alþingis sem jafnframt er birt opinberlega.
Með áritun sinni á ríkisreikning 2010 staðfesti ríkisendurskoðandi að reikningurinn gæfi glögga mynd af afkomu ríkissjóðs, ríkisstofnana, fyrirtækja og sjóða í A- til E-hluta ríkissjóðs, efnahag í árslok og breytingu á handbæru fé á árinu í samræmi við lög um ársreikninga og fjárreiður ríkisins. Áritunin var fyrirvaralaus.
Fjölmargar fleiri athugasemdir og ábendingar er að finna í skýrslunni sem nálgast má á vefsíðu Ríkisendurskoðunar.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 6. desember 2010, Innlent Ekki nógu vel staðið að framkvæmd launalækkunar
- Föstudagur, 9. desember 2011, Innlent Góð yfirsýn um skuldbindandi samninga
- Laugardagur, 24. september 2011, Innlent Ekki verður horft fram hjá gagnrýni
- Miðvikudagur, 8. febrúar 2012, Innlent Bæta þarf eftirlit með samningum
- Mánudagur, 5. mars 2012, Innlent Þarf að skjalfesta verklagsreglur
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































