Íslendingar við góða heilsu

Dánartíðni vegna leghálskrabbameins er sú þriðja lægsta á Íslandi samanborið við hin OECD-ríkin. stækka

Dánartíðni vegna leghálskrabbameins er sú þriðja lægsta á Íslandi samanborið við hin OECD-ríkin.

Fjórir af hverjum fimm fullorðnum á Íslandi (80%) töldu sig við góða heilsu árið 2009 í samanburði við 69% fullorðinna í ríkjum OECD að meðaltali. Árið 2009 var meðalævilengd á Íslandi 81,5 ár en í sex ríkjum OECD var hún lengri. Lífslíkur íslenskra karla við fæðingu voru 79,7 ár, aðeins lægri en í Sviss þar sem þær voru hæstar. Lífslíkur kvenna á Íslandi voru 83,3 ár eða í 11. sæti OECD-landa.

Þetta kemur fram í riti Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) „Health at a Glance 2011, OECD indicators“ og fjallað er um í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Færri deyja hér úr heilablæðingu

Hér á landi dóu hlutfallslega færri af völdum blóðþurrðarhjartasjúkdóma og heilablæðingar árið 2009 en að meðaltali í löndum OECD. Átti það bæði við um konur og karla. Dánartíðni kvenna (aldursstöðluð) vegna krabbameina var heldur hærri hér en meðaltal OECD-ríkja en dánartíðni karla lægri. Nánast enginn munur er á dánartíðni karla og kvenna vegna lungnakrabbameins á Íslandi ólíkt því sem er í öðrum OECD-löndum þar sem dánartíðni karla með lungnakrabbamein er yfirleitt hærri en kvenna. Nýgengi brjóstakrabbameins kvenna var hærra á Íslandi en að meðaltali í OECD-ríkjum en dánartíðni vegna sjúkdómsins hins vegar lægri. Bæði nýgengi og dánartíðni karla vegna krabbameins í blöðruhálskirtli var hærri hér á landi en að meðaltali í löndum OECD.

Árið 2009 var tíðni ungbarnadauða lægst á Íslandi eða sem svarar 1,8 látnum á fyrsta ári af 1.000 lifandi fæddum. Meðaltal OECD landa var 4,4 börn en var 30 árið 1970.  Börn með lága fæðingarþyngd (undir 2.500 grömmum) voru einnig hlutfallslega fæst hér á landi árið 2009 en 4,1 % nýfæddra barna voru í þeim hópi samanborið við 6,7% að meðaltali í OECD-ríkjum.

Áætlað er að á árinu 2010 hafi 1,6% einstaklinga á aldrinum 20-79 ára hér á landi verið með sykursýki. Er þetta lægsta hlutfall á meðal OECD-landa þar sem meðaltalið er áætlað 6,5%. Er talið að hlutfallið sé yfir 10% í Bandaríkjunum og Mexíkó.

Færri reykja hér

Þótt margt hafi áunnist í að bæta heilsufar þjóða eiga lífsstílsþættir eins og reykingar, áfengisneysla, offita, óhollt mataræði og hreyfingarleysi enn stóran þátt í sjúkdómabyrðinni í ríkjum OECD í dag.

Árið 2009 reyktu 15,8% fullorðinna á Íslandi daglega samanborið við 22,1% í löndum OECD að meðaltali. Í öllum OECD-ríkjum nema Svíþjóð var hlutfall þeirra sem reykja hærra meðal karla en kvenna. Á Íslandi, Noregi og Bretlandi voru reykingar svipaðar hjá kynjunum.

Rúmlega helmingur fullorðinna er nú talinn of þungur eða of feitur í 19 af 34 löndum OECD, þ.á m. á Íslandi. Árið 2009 var hlutfall of feitra hæst í Bandaríkjunum eða 34%  en lægst í Kóreu og Japan, um 4%. Á sama tíma var þetta hlutfall 20% á Íslandi sem er svipað og í Finnlandi en var 10-13% hjá hinum Norðurlandaþjóðunum. Samkvæmt skýrslu OECD voru tíu aðildarlönd með hærra hlutfall of feitra en Ísland. Eitt af hverjum fjórum til fimm börnum á aldrinum 5-17 ára hér á landi telst of þungt eða of feitt.

Á Íslandi og í Svíþjóð voru 3,7 læknar á hverja 1.000 íbúa árið 2009 en 4,0 í Noregi, 3,4 í Danmörku og 2,7 í Finnlandi. Meðaltalið fyrir  OECD var 3,1. Konum í læknastétt í OECD-ríkjum fjölgaði úr 29% árið 1990 í 43% árið 2009. Voru konur 32% lækna hér á landi árið 2009.

Á Íslandi var hlutfall heimilislækna af læknum í heild 16% samanborið við 26% í löndum OECD að meðaltali árið 2009. Þróunin sýnir að sérfræðingum hefur fjölgað hlutfallslega meira en heimilislæknum í ríkjum OECD.

Samanlagður fjöldi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða var 15 á hverja 1.000 íbúa hér á landi sem er svipað og í Sviss, Belgíu og Danmörku en var 14 í Noregi, 11 í Svíþjóð og 10 í Finnlandi. Meðaltal fyrir OECD-lönd var 8,4. Á Íslandi voru 4,2 hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á hvern lækni á sama tíma og meðaltal OECD-landa var 2,8.

Legur og meðallegutími á sjúkrahúsum gefa vísbendingar um starfsemi sjúkrahúsa. Árið 2009 var 141 lega á 1.000 íbúa á Íslandi sem er heldur lægra hlutfall en að meðaltali í löndum OECD (158). Meðallegutíminn hér á landi var 5,8 dagar árið 2009 en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð var hann heldur lægri (4,6-5,7). Meðaltal OECD-landa var 7,2 dagar.

Fleiri í kransæðavíkkanir og liðskiptaaðgerðir

Hér á landi voru framkvæmdar fleiri kransæðavíkkanir á 100.000 íbúa en að meðaltali í löndum OECD. Það sama má segja um liðskiptaaðgerðir á mjöðm og hné sem hefur fjölgað til muna á undanförnum árum.

Lyfjanotkun er mjög breytileg milli landa. Árið 2009 var notkun sykursýkislyfja minnst á Íslandi af löndum OECD eða 29 dagskammtar á hverja 1.000 íbúa á dag en meðaltalið fyrir OECD var tæplega 59. Helst það í hendur við lága tíðni sykursýki hér á landi samanborið við önnur lönd. Notkun þunglyndislyfja var aftur á móti mest á Íslandi, 98 dagskammtar á hverja 1.000 íbúa á dag eða næstum helmingi meiri en að meðaltali í ríkjum OECD (53).  Notkun blóðfitulækkandi lyfja var heldur meiri hér en í  OECD-löndum að meðaltali en notkun sýklalyfja jafnmikil.

Mikil gæði heilbrigðisþjónustu

Til þess að meta gæði heilbrigðisþjónustu hafa verið þróaðir og valdir gæðavísar. Val gæðavísa takmarkast af ýmsum þáttum, s.s. samanburðarhæfi upplýsinga og aðgengi að þeim og ber að hafa það í huga þegar upplýsingar eru skoðaðar frá einstökum ríkjum. Ísland stendur sem fyrr almennt vel að vígi þegar kemur að gæðum heilbrigðisþjónustu. Dæmi um slíkt er árangur af meðferð við kransæðastíflu á Íslandi, mældur sem hlutfall látinna innan 30 daga eftir innlögn. Þar er Ísland með fjórða besta árangurinn en á árinu 2009 létust þrír af hverjum 100 sjúklingum sem voru lagðir inn vegna bráðrar kransæðastíflu. Var hlutfallið svipað eða heldur lægra í Svíþjóð, Noregi og Danmörku en það var rúmlega fimm að meðaltali í löndum OECD. Þá var Ísland vel fyrir neðan meðaltal OECD hvað varðar dauðsföll innan 30 daga eftir innlögn vegna heilaáfalla, bæði vegna blóðþurrðar og blæðinga.

Dánartíðni vegna leghálskrabbameins er sú þriðja lægsta á Íslandi samanborið við hin OECD-ríkin. Hér á landi er aldursstöðluð dánartíðni, 1,3 á hverjar 100.000 konur, í Finnlandi 1,2 en 0,8 á Ítalíu þar sem tíðnin er lægst. Meðaltal OECD-ríkjanna er 3,2.

Hátt hlutfall sem sleppir því að fara til tannlæknis

Samanburður 24 Evrópulanda árið 2009 sýnir að algengara var að fólk sleppti því að fara til tannlæknis en læknis þótt þess væri þörf. Var hlutfall þeirra sem ekki fóru til tannlæknis með því hæsta á Íslandi, Svíþjóð, Noregi, Ítalíu og Póllandi (um 10%), og var mun hærra hjá tekjulágum en tekjuháum.

Hlutur einstaklinga í tannlæknakostnaði í heild er hlutfallslega hár á Íslandi miðað við önnur OECD-lönd eða 81% samanborið við 54% að meðaltali í löndum OECD. Á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið á bilinu 54-75%.

Á Íslandi bjuggu 6% 65 ára og eldri á stofnunum sem veita langtíma hjúkrun árið 2009 og var hlutfallið svipað í Noregi og Svíþjóð, en  lægra í Danmörku og Finnlandi.

Hér á landi voru 69 hjúkrunarrými (á hjúkrunarheimilum og sjúkrahúsum) á hverja 1.000 íbúa 65 ára og eldri árið 2009 en meðaltal 19 OECD-ríkja var tæp 50. Hæst var hlutfallið í Svíþjóð (82) en lægst á Ítalíu (18).

Heildarútgjöld til heilbrigðismála í ríkjum OECD voru að meðaltali 9,6% af vergri landsframleiðslu (VLF) ríkjanna árið 2009. Í Bandaríkjunum var hlutfallið hæst eða 17,4% en hér á landi voru heildarútgjöld til heilbrigðismála 9,7% af VLF árið 2009, samanborið við 9,1% árið 2008. Var Ísland í 14. sæti OECD-ríkja á þennan mælikvarða. Danir vörðu 11,5% af VLF til heilbrigðismála árið 2009, Svíar 10,0% og Norðmenn 9,6%, Hollendingar 12,0%, Frakkar 11,8% og Þjóðverjar 11,6%.
 
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
KASSAGÍTARTILBOÐ
Kassagítartilboð kr. 22.900. Gítar, poki, aukastrengjasett ...
OPEL ASTRA ENJOY
Opel Astra Enjoy Nýskr. 4/2007, ekinn 93 þ. km, bensín, 5 g...
Adria Classic 563 til sölu
Árg. 2007 en tekið í notkun 2009. Vel með farið. Salerni og sturtuaðstaða. Verð ...
Til sölu Volvo V70, árgerð 2006, ek. 83þ
Til sölu Volvo V70, árgerð 2006,ekinn 83 þús km .Innfluttur nýr frá Brimborg. Ál...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...