Miklir hagsmunir í stofnfjárdeilu

Hörgárdalur. stækka

Hörgárdalur. www.mats.is

Stór hluti heimila í Hörgárbyggð og Arnarneshreppi við Eyjafjörð hefur átt í alvarlegum fjárhagslegum erfiðleikum vegna mikilla skulda sem stofnað var til þegar stofnfé Sparisjóðs Norðlendinga var aukið.

Hæstiréttur sýknaði hins vegar tvo sparifjáreigendur í innheimtumáli, sem Íslandsbanki höfðaði og taldi að mönnunum hefði ekki verið gerð grein fyrir þeirri áhættu, sem fylgdi skuldsettum kaupum á nýju stofnfé í sjóðnum.

Fyrir samruna þess Sparisjóðs Norðlendinga og Byrs sparisjóðs í desember 2007 var ákveðið að auka stofnfé hins fyrrnefnda til að ná réttum hlutföllum í eign stofnfjáreigenda hins sameinaða sjóðs. Vörðu stofnfjáreigendur á þriðja hundrað milljóna króna til þess.

Á sama tíma var stofnfé Byrs aukið um 29 milljarða króna, eins og frægt er orðið, og tóku Norðlendingarnir þátt í þeirri aukningu eins og aðrir stofnfjáreigendur í Byr.

Margir tóku lán hjá Glitni til að fjármagna stofnfjáraukninguna og eru þessi lán nú hjá Íslandsbanka. Kostnaður stofnfjáreigenda í Sparisjóði Norðlendinga nam samtals tæpum þremur milljörðum króna vegna þessa.

Skuldir upp á tugi milljóna

Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Norðlendinga voru um hundrað talsins og nam meðalskuld á hvern stofnfjáreiganda því um þrjátíu milljónum króna. Þá voru hjón í sumum tilvikum bæði stofnfjáreigendur í sjóðnum.

Sparisjóður Norðlendinga varð til við samruna Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps og Sparisjóðs Akureyrar og Arnarneshrepps árið 1997. Í Glæsibæjarhreppi var mjög almenn stofnfjáreign í sjóðnum, eins og sést á því að í sameinuðum sparisjóði voru íbúar í þeim hreppi um helmingur stofnfjáreigenda.

Talið var að um helmingur íbúa hreppsins fyrrverandi hefði átt stofnfé í sjóðnum og tóku þeir allir þátt í stofnfjáraukningunni. Glæsibæjarhreppur rann saman við Skriðuhrepp og Öxnadalshrepp árið 2001 undir nafninu Hörgárbyggð. Í því sveitarfélagi búa innan við fimm hundruð manns. Staðan í Arnarneshreppi er sögð svipuð, en þar búa aðeins um 180 manns og er talið að um helmingur heimila þar sé í alvarlegum vanda vegna skuldsettrar stofnfjáraukningar.

Líkt og aðrir stofnfjáreigendur í Byr stóðu Norðlendingar í þeirri trú að lánin sem þeir tóku vegna stofnfjáraukningarinnar væru í raun áhættulaus. Stofnfjárbréfin sjálf væru eina veðið fyrir lánunum og færi allt á versta veg gæti bankinn ekki gengið að öðrum eignum stofnfjáreigendanna. Þeir væru með öðrum orðum ekki persónulega ábyrgir.

Hæstiréttur staðfesti í dag þá niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, að stofnfjáreigendurnir hefðu samþykkt lántökuna vegna ónákvæmrar upplýsingagjafar af hálfu Glitnis, á þeirri röngu forsendu að áhætta þeirra takmarkaðist við hin veðsettu stofnfjárbréf. Þau stofnbréf eru nú verðlaus.

Fleiri byggðir í svipaðri stöðu

Fleiri smærri sveitarfélög eru í svipaðri stöðu og Hörgárbyggð. Um fimmta hvert heimili í Húnaþingi vestra og Bæjarhreppi stendur frammi fyrir alvarlegum fjárhagsvanda eða jafnvel persónulegum gjaldþrotum vegna skuldsettra kaupa á stofnfé í Sparisjóði Húnaþings og Stranda.

Sparisjóðurinn rann saman við Sparisjóð Keflavíkur árið 2007, en áður en gengið var frá sameiningunni var ákveðið að styrkja stöðu Sparisjóðs Húnaþings og Stranda. Stofnfé sjóðsins hafði fyrir þann tíma verið tæpar tvær milljónir króna, en eftir aukningu var stofnfé tveir milljarðar.

Í sveitarfélögunum tveimur, Húnaþingi vestra og Bæjarhreppi, búa um 1200 manns og af þeim voru um 200 stofnfjáreigendur í sparisjóðnum. Um 140 eigendur tóku lán vegna stofnfjáraukningarinnar.

Þá kom fram nýlega, að um 150 stofnfjáreigendur Sparisjóðs Svarfdæla tóku þátt í stofnfjáraukningu sjóðsins í lok árs 2007. Að meðaltali fjárfesti hver og einn þeirra í 3,5 milljónum af nýju stofnfé. Stofnféð er nú að mestu verðlaust enda hefur Seðlabanki Íslands leyst til sín um 90% af stofnfé sparisjóðsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TRAVEL LITE HÚSIN
Travel Lite Húsin eru í mörgum stærðum og henta á...
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
Varahlutir í MITSUBISHI PAJERO o.fl.
Eigum notaða varahluti í flesta Mitsubishi bíla svo sem Pajero, L200, Lancer, Ga...
Til sölu vespa
Til sölu mjög vel með farin Znen 50 QT 11C tvígengis vespa. Ekin aðeins 3.200 ...
 
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...