Ótrúverðugur rökstuðningur
Rökstuðningur meirihluta borgarstjórnar fyrir því að afnema greiðslu vegna yfirvinnustunda í neysluhléi leikskólakennara í skrefum er ótrúverðugur að sögn Sóleyjar Tómasdóttur, borgarfulltrúa VG. Var samþykkt á fundi borgarráðs í morgun að afnema þessar greiðslur.
Í yfirlýsingu Sóleyjar kemur fram að greiðslur fyrir matarhlé hafa verið inntar af hendi frá því 2007 þótt önnur sveitarfélög í landinu hafi fellt þær niður. Fulltrúar allra flokka í Reykjavík hafi staðið um þær vörð gegnum erfitt tímabil og rökstutt með sanngirnissjónarmiðum.
Því veki viðsnúningur í afstöðu meirihlutans nú furðu og tilraun hans til að rökstyðja ákvörðun sína er ótrúverðug, sér í lagi þar sem versti hjallinn í kjölfar efnahagshrunsins sé yfirstaðinn. Rökstuðningur meirihlutans byggi á því að leikskólakennarar hafi náð fram meiri hækkunum en aðrar stéttir í gegnum kjarasamninga og því sé eðlilegt að fella niður „yfirborganir“ sem Reykjavík hafi stundað en ekki önnur sveitarfélög.
Þá nái ákvörðun meirihlutans aðeins til leikskólakennara, sem eru um 30% starfsfólks á leikskólum. Aðrir starfsmenn fái áfram greitt fyrir vinnu sína í matartímum leikskólanna. Segir Sóley að grunnskólakennarar fái greitt fyrir að matast með nemendum, stéttin sem leikskólakennarar beri sig saman við. Matartímar leikskólanna séu hluti af daglegu starfi sem geta ekki farið fram án leikskólakennara. Fyrir þá vinnu eigi að greiða.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 12. janúar 2011, Innlent Spara nokkrar milljónir með að afnema afslátt
- Miðvikudagur, 20. apríl 2011, Innlent „Við þökkum þeim fyrir þeirra framlag“
- Mánudagur, 2. apríl 2012, Innlent Leikskólakennarar láta í sér heyra
- Mánudagur, 18. apríl 2011, Innlent Sameiningartillögur samþykktar
- Miðvikudagur, 8. febrúar 2012, Innlent Málshöfðun verði neysluhlé afnumið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































