Beiðni Huangs synjað

Kínverski kaupsýslumaðurinn Huang Nubo fær ekki að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum, að sögn Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra.

Huang ætlaði meðal annars að reisa hótel á jörðinni. Ögmundur sagði við fréttamenn að loknum ríkisstjórnarfundi nú í hádeginu að umsóknin hafi borist í nafni hlutafélags en ekki í nafni fjárfestisins sjálfs. Ef umsóknin hefði hlotið brautargengi þá hefði það getað skapað slæmt fordæmi þar sem hún uppfyllti ekki lög og reglugerðir á Íslandi.

Ögmundur vildi ekki tjá sig um hvort þessi ákvörðun hafi áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið en Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, er meðal þeirra sem hafa lýst því yfir að heimila ætti Huang að kaupa jörðina. Hins vegar sagði Ögmundur í samtali við mbl.is að skiptar skoðanir hafi verið um málið í ríkisstjórninni.

Fjárfestingin var metin á 200 milljónir Bandaríkjadala

Jörðin Grímsstaðir á Fjöllum er 300 ferkílómetrar að stærð. Fjárfestingin var metin á 200 milljónir Bandaríkjadala, eða um 23 milljarða króna.

Sagði Huang á sínum tíma að tengsl sín við landið og náttúrufegurðin séu drifkrafturinn á bak við þessa fjárfestingu.

Huang er vinur Hjörleifs Sveinbjörnssonar, en þeir hafa þekkst frá árinu 1977 þegar þeir stunduðu nám við háskólann í Peking í Kína.

Huang greindi frá því fyrr í mánuðinum í viðtali við kínverska fjölmiðla að hann hafi fallið fyrir náttúrufegurð Íslands þegar hann heimsótti landið í fyrra þegar hann var gestur á ljóðahátíð í fyrra. Hann segist hafa orðið var við þann fjármálavanda sem þjóðin glímdi við og vilja manna til að fá erlenda aðila til að fjárfesta á Íslandi.

Hann sendi teymi manna til að kanna aðstæður hér og þegar Huang heimsótti landið í annað sinn var hann búinn að taka ákvörðun.

Huang er einnig ljóðskáld og hann segir að það hjálpi sér við að taka ákvarðanir í viðskiptum. „Ég valdi þennan stað á Íslandi með því að fylgja eftir eðlishvöt skáldsins fyrir fegurð,“ segir hann.

Hann bætir því við að þau verkefni, sem hafi skilað mestum hagnaði, séu þau sem tengist sínum menningarsmekk.

Hefði verið án fordæma

Í tilkynningu sem innanríkisráðuneytið hefur sent frá sér kemur fram að innanríkisráðuneytið hefur svarað beiðni Beijing Zhongkun Investment Group frá 31. ágúst um að veitt verði undanþága frá lögum vegna kaupa á hlut í jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum, alls 30.639 hektara landsvæði. Vegna umfjöllunar um málið vill ráðuneytið taka fram eftirfarandi.

„Um heimild til að öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum á Íslandi er nánar fjallað í lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna nr. 19/1966 með síðari breytingum. Í samræmi við 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. laganna er félagi þar sem enginn félaga ber fulla ábyrgð á skuldum félagsins eða stofnun óheimilt að eignast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum hér á landi nema félagið eða stofnunin eigi heimilisfang og varnarþing á Íslandi og allir stjórnendur séu íslenskir ríkisborgarar eða með lögheimili á Íslandi samfellt í a.m.k. fimm ár. Í hlutafélögum skulu 4/5 hlutar hlutafjár vera eign íslenskra ríkisborgara og íslenskir ríkisborgarar fara með meirihluta atkvæða á hluthafafundum. Í þessu felst nánar að sé þess óskað að hlutafélag fái að eignast fasteign hér á landi, og það fellur ekki undir undantekningarákvæði 1. tölul. eða 2. tölul. 4. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1966, þarf það að uppfylla eftirtalin fjögur skilyrði laganna til að svo geti orðið:

1.   Félagið skal eiga heimilisfang og varnarþing á Íslandi.

2.   Allir stjórnendur félagsins skulu vera íslenskir ríkisborgarar eða með lögheimili á Íslandi í a.m.k. fimm ár.

3.   4/5 hlutar hlutafjár félagsins skulu vera í eigu íslenskra ríkisborgara.

4.   Íslenskir ríkisborgarar skulu fara með meirihluta atkvæða á hluthafafundum.

Samkvæmt 2. tölul. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1966 getur innanríkisráðherra, svo sem fyrr greinir, veitt leyfi til að víkja frá skilyrðum 1. mgr. 1. gr. laganna ef annars þykir ástæða til. Er hér um að ræða undanþáguákvæði sem ber samkvæmt almennum lögskýringarreglum að túlka þröngt. Telur ráðuneytið mikilvægt að við beitingu þess sé litið til markmiðs laga nr. 19/1966 og forvera þeirra, samnefndra laga nr. 63/1919, en af lögskýringargögnum verður ráðið að talið hafi verið að takmarkanir útlendinga til þess að öðlast réttindi yfir fasteignum á Íslandi væru nauðsynlegar til þess að standa vörð um sjálfstæði eða fullveldi landsins og möguleika Íslendinga til að njóta sjálfir arðs af auðlindum sínum. 

Að mati ráðuneytisins verður ekki horft framhjá því hversu stórt landsvæði er um að ræða sem félagið hyggst kaupa, eða 30.639 hektarar, og að engin fordæmi eru fyrir því að jafnstórt landsvæði á Íslandi hafi verið fært undir erlend yfirráð. Telur ráðuneytið það ekki samrýmanlegt tilgangi og markmiði laga nr. 19/1966 að ráðherra veiti leyfi til þess að víkja frá skilyrðum 1. mgr. 1. gr. laganna þegar um jafnstórt svæði er að ræða.

Einnig ber að hafa í huga að ákvæðið setur fyrir því ströng skilyrði að hlutafélög megi öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir íslenskum fasteignum og er ljóst að umrætt félag uppfyllir ekkert þeirra. Telur ráðuneytið því að í máli þessu séu aðstæður með þeim hætti að ef leyfi væri veitt til undanþágu frá lögunum væri vikið svo langt frá þeirri meginreglu sem 1. mgr. 1. gr. mælir fyrir um, að ekki sé réttlætanlegt.

Niðurstaða ráðuneytisins er sú að ekki þyki ástæða til fyrir innanríkisráðherra að veita Beijing Zhongkun Investment Group leyfi til að víkja frá skilyrðum 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. laganna og kaupa 72,19% eignarhlut í óskiptri heildareign jarðarinnar Grímsstaða á Fjöllum. Er beiðni félagsins þar að lútandi því hafnað," segir í tilkynningu innanríkisráðuneytisins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Salvör Nordal, fyrrum formaður Stjórnlagaráðs, ásamt fleiri fulltrúum í ráðinu.

Gerir alvarlegar athugasendir

11:52 Fram koma alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá í bréfi fyrrum formanns ráðsins, Salvarar Nordal, til forsætisnefndar þingsins í kjölfar þess að samþykkt var á Alþingi í gær að vísa málinu til ráðsins á ný. Meira »

Telja neytendur eiga betri rétt

11:36 Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm um gengistryggð lán. Leggja samtökin til að Samtök fjármálafyrirtækja verði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang. Meira »

Hundarnir finna dópið strax myndskeið

230212 logguhundar
12:00 Undanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar. Meira »

D-vítamínbætt mjólk á markað

D-vítamínbætt léttmjólk.
11:44 Mjólkursamsalan, MS, hefur á næstu dögum sölu á D-vítamínbættri léttmjólk. Er það gert samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala. Meira »

Tæplega helmingur ók of hratt

Hraðamælingar lögreglu.
11:31 Tæplega helmingur ökumanna sem fór um Suðurgötu í Reykjavík á einni klukkustund eftir hádegið í gær ók of hratt eða yfir afskiptahraða. Á meðan lögregla vaktaði götuna fóru 122 ökutæki akstursleiðina og 48% þeirra voru á of mikilli ferð. Meira »

Ummerki um olíu frá Júratímabilinu

Drekasvæðið.
11:54 Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkustofnunar. Meira »

Unnur Brá: Eina lausnin?

Unnur Brá Konráðsdóttir
11:33 „Svo virðist sem forsætisráðherra hafi aðeins eitt svar við öllum spurningum og eina lausn á öllum vanda, það er að Ísland gangi í ESB og taki upp evru", segir Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum

Jón Baldvin Hannibalsson
11:14 Eitt bréfanna sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi ungri systurdóttur eiginkonu sinnar var sent frá Tallinn í Eistlandi árið 2001. Þá var hann þar staddur í opinberum erindagjörðum sem heiðursræðumaður á hátíðarsamkomu, sem var skipulögð af upplýsingaskrifstofu Norræna ráðherraráðsins þar í landi. Hann lýsir þar samskiptum sínum við vændiskonur. Meira »

Vatnsleki vegna ræktunar

Kannabisræktun.
11:05 Lögregla höfuðborgarsvæðisins stöðvaði kannabisræktun í íbúð fjölbýlishúss í miðborg Reykjavíkur í fyrradag. Tilkynnt var um mikinn vatnsleka í húsinu og var slökkviliðið kallað á vettvang, en lekann mátti rekja til ræktunarinnar. Karlmaður á þrítugsaldri var yfirheyrður vegna málsins. Meira »

Allt að 25% verðmunur

11:03 Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í þremur lágverðverslunum og fjórum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu og Ísafirði 20. febrúar. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Samkaupum-Úrvali eða í um helmingi tilvika. Meira »

„Ég er komin með nóg“

Úr Nýju lífi
11:03 „Ég er komin með nóg. Reglulega kemur upp hjá mér reiði, sorg eða biturð yfir þessu máli og nú langar mig að koma því frá mér,“ segir Guðrún Harðardóttir, sem í viðtali í Nýju lífi segir frá bréfum sem eiginmaður móðursystur hennar, Jón Baldvin Hannibalsson, sendi henni er hún var unglingur. Meira »

„Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“

Þór Saari.
10:58 Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar skrifar á Facebook að Pawel Bartozsek sem sat í stjórnlagaráði og hefur gagnrýnt meðferð þingsins á tillögum þess, virðist eitthvað misskilja ferlið við breytingar á stjórnarskránni. Þór skorar á Pawel að halda áfram að vinna með stjórnlagaráði. Meira »

Perlan góður kostur fyrir safn

Perlan
10:51 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningamálaráðherra, sagði á Alþingi í dag, að hún hefði rætt það óformlega við stjórnarmenn Orkuveitu Reykjavíkur að Perlan yrði nýtt undir Náttúruminjasafn Íslands, verði ekki af sölu hennar. Hún segir Perluna áhugaverðan kost fyrir safn af því tagi. Meira »

Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
10:44 Fram kom í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í dag að gert væri ráð fyrir því að rammaáætlun um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða yrði tilbúin á næstu dögum. Meira »

Bað hana að leyna bréfunum

Jón Baldvin Hannibalsson
10:31 Jón Baldvin bað systurdóttur eiginkonu sinnar að leyna bréfum sem hann sendi henni næstu áratugina. Ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri um samfellda háttsemi að ræða og því væru hin meintu eða ætluðu brot vegna bréfanna frá 1998 fyrnd. Meira »

Með kannabisgræðlinga í bíl

Kannabisplöntur.
10:46 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði í húsi manns eftir að á fjórða tug kannabisgræðlinga fundust í bíl hans í fyrradag. Við húsleitina fundust um 900 grömm af tilbúnu maríjúana og um 1,4 kg af öðrum kannabisefnum. Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin. Meira »

Efla þarf rannsóknir á höfunum

Ólafur Ragnar Grímsson.
10:34 Nauðsynlegt er að efla rannsóknir á höfunum og auðlindum þeirra, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands í setningarræðu á heimsþingi um höfin í morgun sem haldið er í Singapúr. Hann rakti einnig reynslu Íslendinga af veiðum á grundvelli vísindalegra vísinda og þróun samstarfs á Norðurslóðum. Meira »

Málið var kært, en fellt niður

Forsíða Nýs lífs.
10:09 Samkvæmt umfjöllun nýjasta tölublaðs Nýs lífs reyndi Jón Baldvin Hannibalsson að kyssa systurdóttur eiginkonu sinnar þegar hún var á unglingsaldri, hann fór inn í herbergi hennar að næturlagi og snerti hana „óþarflega mikið“. Hann sendi henni bréf, þar sem hann lýsti kynlífi sínu og samskiptum við vændiskonur. Málið var kært, en látið falla niður. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gamaldags og nýmóðins trúlofunarhringar
Gull, hvítagull, silfur, titanium, tungsten, rúna- og höfðaleturshringar á verði...
ELTAK - VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum. Bjóðum mesta úrval á Íslandi af s...
Daewoo Nubria'00. Ek.99þús. Verð 300þús
Daewoo Nubria, árg.'00. Ek. 99þús. Á nagladekkjum, sumardekk fylgja. Skoðaður 13...
Fallegu silfurskeiðarnar eru smíðaðar
í smiðjunni okkar ásamt borðsilfrinu íslenska. Skeiðarnar kosta 17.500,- og við ...
 
Framleiðslustarfsmenn - raf- og véliðnaðarmenn og sumarstörf
Iðnaðarmenn
Atvinnutækifæri á Austurlandi Matthía...
Yfirvélstjóri
Sjávarútvegur
Yfirvélstjóri Oddi hf. á Patreksfir...
I.o.o.f. 11
Félagsstarf
I.O.O.F. 11 [ 1922238 [ Gh....
Deildarlæknir við geðdeild
Heilbrigðisþjónusta
Deildarlæknir við geðdeild Sjúkrahússins...