Fréttaskýring: Hafró við hættumörk

Aflaheimildir grundvallast á rannsóknum Hafrannsóknastofnunar á nytjastofnum við Íslandsstrendur. Vegna fjárskorts hefur úthaldsdögum til rannsókna ... stækka

Aflaheimildir grundvallast á rannsóknum Hafrannsóknastofnunar á nytjastofnum við Íslandsstrendur. Vegna fjárskorts hefur úthaldsdögum til rannsókna fækkað auk þess sem dregið hefur úr öðrum rannsóknum.

Morgunblaðið Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is

Niðurskurður framlaga til starfsemi Hafrannsóknastofnunar virðist farinn að nálgast hættumörk. Þetta er niðurstaða nefndarálits meirihluta atvinnuveganefndar til fjárlaganefndar vegna fjárlagafrumvarps næsta árs.

Þingnefndir hafa unnið að álitum sínum til fjárlaganefndar um fjárlagafrumvarpið 2012 að beiðni nefndarinnar. Almennt er í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir 3% samdrætti í almennri stjórnsýslu og 1,5% í velferðarmálum.

Rekstur skipa í hættu

Í áliti meirihluta atvinnuveganefndar kemur fram að sérstaklega hafi verið rætt um vöktun nytjastofna og að um 70-80% ráðstöfunarfjár Hafrannsóknastofnunar fari í slík verkefni. Stofnunin hafi skorið niður umhverfis- og líffræðirannsóknir síðustu ár til að geta haldið vöktun úti.

Komið er inn á að Hafrannsóknastofnun sé dugleg að sækja sér tekjur í sjóði en í álitum minnihluta er bent á að sá tekjugrunnur sé ótraustur. Meirihlutinn bendir einnig á að 53% hækkun á olíuverði frá 2009 sé langt umfram verðlagsbreytingar og hafi þýtt 80 milljóna króna hækkun rekstrarkostnaðar rannsóknarskipa.

Í minnisblaði Hafrannsóknastofnunar kemur fram að stofnunin hafi rétt haldið sjó fyrir hrun. Komi 3% skerðing ríkisframlags til stofnunarinnar til framkvæmda á næsta ári, sé ljóst að ríkið hafi þá skert framlög til hennar um 22-25% frá árinu 2009. Ríkisframlag til hennar sé áætlað 1.332 millj. kr. á næsta ári en hafi verið 1.525,1 millj. árið 2009. Skerðingunni hafi verið mætt með fækkun verkefna og færri úthaldsdögum skipa.

„Með skerðingu hefur grundvelli útgerðar tveggja rannsóknarskipa verið stefnt í hættu á sama tíma og ný verkefni, m.a. tilkoma nýrra nytjastofna (kolmunna og makríls) og vegna breyttra umhverfisaðstæðna kalla á aukið úthald skipanna.“

Áhyggjur af auknu álagi

Meirihluti atvinnuveganefndar gerir einnig í áliti sínu til fjárlaganefndar athugasemdir við að á sama tíma og Matvælastofnun sé gert að bæta við sig verkefnum, nemi væntanlegur niðurskurður til hennar nær því ríkisframlagi sem stofnuninni var ætlað vegna aukins álags.

Einnig lýsir meirihlutinn áhyggjum af því tímabundna álagi sem er á stjórnsýslunni vegna aðildarumsóknar að Evrópusambandinu. Í umfjöllun meirihlutans var sérstaklega tekið fram að mikið aukið álag væri bæði á starfsmenn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og stofnanir þess, svo sem Hafrannsóknastofnun og Fiskistofu auk Matvælastofnunar.

Vilja skýrari línur í niðurskurði

Velferðarnefnd lýsir í áliti sínu til fjárlaganefndar áhyggjum af því að ekki verði gengið lengra í hagræðingarátt án þess að skerða þjónustu og fækka störfum og kallar eftir að línur verði skýrðar áður en fjárlagafrumvarpið verði samþykkt. „Telur meirihlutinn ljóst að áður en kemur að lokaafgreiðslu fjárlaga þurfi að liggja fyrir hvaða áhrif niðurskurðurinn hefur á einstökum stofnunum, stöðum og landsvæðum.“

Velferðarnefndin varar einnig við hættu á því að frekari niðurskurður í heilbrigðisþjónustu geti leitt til minni sparnaðar en lagt er upp með. Hætta sé á stórauknum útgjöldum úr ríkissjóði vegna sérfræðilækninga, sem hafi aukist um 8% frá árinu 2008 á meðan útgjöld til heilbrigðisstofnana hafi dregist saman um 22%. Er mælt með upptöku þjónustustýrðs tilvísankerfis.

Til tekjuaukningar mælir meirihlutinn með hækkun gjalda á áfengi, tóbak og munntóbak sem geti nýst til að draga úr niðurskurði í heilbrigðismálum. Vísar hann til nefndarálits síns til efnahags- og viðskiptanefndar þar sem lagt er til í samræmi við tillögur ÁTVR að tóbak hækki um 7,5% í stað 5,1% sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu.

Skortir fé til annarra verkefna

• Ekki gert ráð fyrir hækkun olíu „Það sem við erum að vekja athygli á, er sú staðreynd að Hafrannsóknastofnun fékk á þessu ári um fjögur hundruð milljónir út úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins, sem hefur haft tekjur sínar af svokölluðum VS-afla. Nú er það mat sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að tekjurnar vegna þessa afla verði minni og það mun því óhjákvæmilega hafa áhrif á rekstrarstöðu Hafrannsóknastofnunar,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem situr ásamt Jóni Gunnarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, í atvinnuveganefnd en þeir skiluðu áliti 1. minnihluta til fjárlaganefndar.

Með VS-afla er átt við að menn mega fiska upp að ákveðnu magni og landa 5% umfram aflaheimildir og selja þann fisk á fiskmörkuðum, 80% renna til VS-sjóðsins en 20% til skipta milli útgerðar og áhafnar.

Hugsunin á bak við þá aðferð er að reyna að draga úr brottkasti.

Einar segir að þar sem tekjurnar séu óvissar frá ári til árs, þýði það að nokkur óvissa ríki í kringum rekstrarforsendur stofnunarinnar. Hann bendir á að auk væntanlegrar tekjuskerðingar úr sjóðnum sé stofnunin að taka á sig hagræðingarkröfu eins og aðrar stofnanir hjá ríkinu.

„Við erum að vekja athygli á því að 80% af rekstrarumfangi Hafrannsóknastofnunar eru verkefni sem lúta að undirbúningi á stofnstærð og slíku. Undan því verði ekki vikist. Það er því alveg ljóst að samdráttur í tekjum stofnunarinnar mun þá bitna á öðrum verkefnum, eins og einstökum mælingum.“

Hann bendir á að þessu til viðbótar komi svo hækkun á olíuverði sem er um 53% sem sé mikið vandamál fyrir Hafrannsóknastofnun og fleiri stofnanir, t.d. Landhelgisgæsluna, Vegagerðina og lögregluna.

Í áliti 2. minnihluta atvinnuveganefndar, Sigurðar Inga Jóhannssonar, þingmanns Framsóknarflokks, er einnig bent á ótraustar tekjur af samkeppnissjóðum og sagt nauðsynlegt að fjármögnun Hafrannsóknastofnunar verði með beinum framlögum frá ríkinu í stað sjóða.

sigrunrosa@mbl.is

„Tappagjald“ gegn tannskemmdum

Velferðarnefnd lýsir í áliti sínu til fjárlaganefndar áhyggjum af tannheilsu barna, sem sé „verulega ábótavant,“ en vísbendingar séu um að foreldrar treysti sér ekki til að greiða sinn hlut á móti hlut ríkisins. Vill nefndin að fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd taki til skoðunar að leggja „tappagjald“ á sykraða gosdrykki í viðleitni til að draga úr neyslu þeirra, sem gæti einnig dregið úr offitu en Íslendingar eigi met í neyslu slíkra drykkja. Tekjur af slíku gjaldi gætu nýst til að auka framlög til niðurgreiðslu tannlækninga og forvarna.

Endurskoði byggingu nýs fangelsis

Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar gagnrýnir í nefndaráliti sínu til fjárlaganefndar fyrirhugaða byggingu öryggisfangelsis á Hólmsheiði, nokkrum tugum kílómetra frá Litla-Hrauni og lýsir yfir efasemdum um hagkvæmni slíkrar byggingar. Frekar eigi að byggja komu- og gæsluvarðhaldsrými í Reykjavík í stað fangelsisins á Skólavörðustíg og kvennafangelsisins í Kópvogi og byggja nýja öryggisálmu á Litla-Hrauni. Byggir meirihlutinn álit sitt á framkomnu kostnaðarmati þessara kosta en hún hafði óskað eftir því. „Hagkvæmni þess að reka tvö öryggisfangelsi á sama vinnusvæði blasir ekki við og því er mikilvægt að þessi áform verði endurmetin hið fyrsta,“ segir í álitinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hjólhýsi TEK 585TKM árgerð 2004
Verð 2.500.000 Hjólhýsið er á loftpúðum, þannig að það er mun léttara og mýkra ...
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Burðarsjöl og burðarpokar í miklu úrvali. Henta börnum frá fæðingu til þriggj...
Vor í Tungunum - www.eyjasolibudir.is
Falleg sumarhús til leigu um helgar og virka daga. Fallegt umhverfi. Heit laug o...
Breyttar felgur 15" 6 gata f. Toyota eða Patrol t.d.
TS 15" breyttar felgur. Þær eru tæplega 18" breiðar með valsaða kanta frá GJJá...
 
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...