Styður ákvörðun Ögmundar
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, segir að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hafi komist að réttri niðurstöðu þegar hann hafnaði umsókn Huang Nubo. Hann vill þó að kannað verði áfram hvort ekki sé hægt að stuðla að uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu þó ekki verði að jarðakaupunum.
„Sú ákvörðun Ögmundar Jónssonar innanríkisráðherra að hafna umsókn Kínverjans Nubo um að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum hefur vakið mikil viðbrögð víða í samfélaginu. Sumir gagnrýna hana harðlega, aðrir hafa lýst stuðningi við hana. Niðurstaðan sem innanríkisráðherra komst að er rétt og enginn ráðherra í ríkisstjórn Íslands hefði getað komist að annarri niðurstöðu öðruvísi en að fara á svig við gildandi íslensk lög. Enginn ráðherra getur valið sér niðurstöðu við afgreiðslu mála sem grunda þarf á skýrum lagafyrirmælum. Það ættu þeir að hafa í huga sem gagnrýna ráðherrann hvað harðast, jafnvel úr návígi. Það breytist ekki með háværum upphrópunum og stóryrðum.
Samkvæmt íslenskum lögum er erlendum ríkisborgurum utan EES svæðisins óheimilt að fjárfesta í landi hérlendis. Það er hin almenna regla laganna. Undanþáguheimildin sem löggjafinn hefur veitt verður að skoðast í þessu samhengi og því að það séu ríkir almannahagsmunir að veita undanþágu. Sala á gríðarlegu landsvæði á hálendi Íslands, sem margir hverjir telja dýrmæta auðlind, getur ekki talist til slíkra almannahagsmuna, þvert á móti eru það ríkir almannahagsmunir að landauðlindin sé í eigu opinberra aðila.
En þýðir þessi ákvörðun að við séum með einhverju móti komin á endastöð? Því fer víðs fjarri. Vitaskuld sjá allir sem það vilja sjá, að það þarf ekki að kaupa 0,3% af heildarflatarmáli landsins til að setja á laggirnar hótel og ferðaþjónustufyrirtæki sem færir sér á sjálfbæran hátt í nyt þau eftirsóknarverðu gæði sem óspillt víðerni landsins bjóða upp á. Við erum nú stödd í þessu máli þar sem við erum. Nú væri nær að kanna til hlítar hvort ekki sé unnt að hvetja til og stuðla að uppbyggingu í ferðaþjónustu á svæðinu eins og óskað hefur verið eftir innan þess lagaumhverfis sem í gildi er og í samræmi við þær réttarheimildir sem löggjafinn hefur veitt og framkvæmdavaldið er bundið af,“ segir Árni Þór á heimasíðu sinni.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 27. nóvember 2011, Innlent Vilja flokksstjórnarfund um ákvörðun Ögmundar
- Mánudagur, 10. október 2011, Innlent Boðið að bæta við upplýsingum
- Föstudagur, 25. nóvember 2011, Innlent Vekur spurningar um samstarfið
- Þriðjudagur, 8. maí 2012, Innlent Huang á borði Oddnýjar og Steingríms
- Föstudagur, 25. nóvember 2011, Innlent Andvíg ákvörðun Ögmundar
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































