Vekur spurningar um stjórnarsamstarfið
„Ákvörðun innanríkisráðherra í morgun vekur óhjákvæmilega spurningar um ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar og Vinstri grænna.“ Þetta segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra.
Árni Páll fjallar á heimasíðu sinni um ákvörðun Ögmundar Jónassonar að hafna umsókn Huang Nubo um að kaupa Grímsstaði á Fjöllum.
„VG virðist finnast það sjálfsagt mál að skrifa upp á stjórnarsáttmála og stefnumörkun um mikilvægi erlendrar fjárfestingar, en mæta svo öllum erlendum fjárfestingaráformum með tortryggni og með því að gera einstökum fjárfestum ávallt upp annarleg sjónarmið. Öllu virðist tjaldað til og tilgangurinn helga meðalið: Í fyrra sætti Magma fordæmingu fyrir að hafa stofnað skúffufyrirtæki um fjárfestingu á Íslandi en í dag er höfuðrökstuðningur fyrir synjun innanríkisráðherra sá að félag í eigu Nubo sé ekki skráð á Evrópska efnahagssvæðinu. Skilaboðin til erlendra fjárfesta eru skýr: Öllu verður snúið á haus til að verjast erlendri fjárfestingu.
Í minnisblaði sem ég sendi innanríkisráðherra var ítarlega rakið hversu mikilvæg erlend fjárfesting væri fyrir íslenskt efnahagslíf. Þjóðin er ung og þarf erlent fé. Undanfarna áratugi höfum við byggt alfarið á lánsfé, með hörmulegum afleiðingum. Hrunið hefur kennt okkur að velsæld verður ekki byggð á lánsfé. Þess vegna er erlend fjárfesting nauðsynleg, óháð því hvort Nubo kemur eða fer,“ segir Árni Páll.
Ráðherrann segir að staða efnahagsmála sé sérstaklega viðkvæm nú, þar sem boginn var spenntur til hins ýtrasta með gerð kjarasamninga á liðnu vori, þar sem samið var um kjarabætur umfram það sem efnahagslífið stendur nú undir og miklar byrðar lagðar á ríkissjóð. „Lélegur gangur í nýfjárfestingu frá gerð þeirra veldur því að allar líkur eru á að ávinningur af gerð kjarasamninganna verði lítill sem enginn og kauphækkanir brenni upp í verðbólgu að vanda. Einstök fjárfestingaráform hafa því miður oftar en ekki strandað á ríkinu.“
Bloggað um fréttina
-
Hörður Jónasson Samfylkingin á að slíta stjórnarsamstarfinu nú þegar. -
Rakel Sigurgeirsdóttir Klíkubræðrasamfélaginu ógnað! -
Jón Páll Haraldsson Leppar Vinstri Grænna -
Benedikta E Samfylkingin er ekki stjórntæk meið neinum. -
Páll Vilhjálmsson Kínversk slit Jóhönnustjórnar -
Valgeir Jens Guðmundsson Í álvöru??? -
Gísli Foster Hjartarson Árni Páll fyndinn!!! -
Óli Björn Kárason Innantómar upphrópanir og gagnrýni -
Sigurður Jónsson Er Samfylkingin að gefast upp á Vinstri grænum? -
Óðinn Þórisson Samfylkinng, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 26. nóvember 2011, Innlent Ósætti vegna synjunar
- Föstudagur, 25. nóvember 2011, Innlent Vantar atvinnuuppbyggingu
- Miðvikudagur, 9. nóvember 2011, Innlent Hættulegt að lokast frá umheiminum
- Miðvikudagur, 30. nóvember 2011, Innlent Einkaeign á landi úr sögunni
- Sunnudagur, 27. nóvember 2011, Innlent Vilja flokksstjórnarfund um ákvörðun Ögmundar
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































