Eyjamenn krefjast svara

Landeyjahöfn og Vestmannaeyjar.
Landeyjahöfn og Vestmannaeyjar. Rax / Ragnar Axelsson

Hefja þarf undir eins markvissan undirbúning til þess að koma niður föstum dælubúnaði í Landeyjahöfn. Þetta er mat bæjarstjórnar Vestmannaeyja, sem lýsir miklum áhyggjum af stöðu mála í Landeyjahöfn og óskar eftir skýrum svörum frá innanríkisráðherra um hvað eigi að gera til að leysa vanda Eyjamanna.

Á fundi bæjarstjórnar í gær var samhljóða samþykkt ályktun um að staða dýpkunarmála í Landeyjahöfn væri langt frá því að vera í ásættanlegum farvegi. Að sögn Eyjafrétta tekur bæjarstjórnin undir það mat samráðshóps um Landeyjahöfn að tafarlaust þurfi utanaðkomandi aðilar að yfirfara sandburðar- og efnisburðarútreikninga.

„Öllum má ljóst vera að sandburður er sennilega langt umfram það sem búist var við og mikilvægt að dýpkunaraðferðir taki mið af raunverulegum aðstæðum en ekki spám sem ekki hafa gengið eftir,“ segir í ályktuninni. Því þurfi undir eins að hefja markvissan undirbúning þess að koma niður föstum dælubúnaði, eins og ítrekað hafi verið rætt. Þangað til þurfi hinsvegar að tryggja að þau dýpkunartæki sem halda eiga þjóðveginum til Eyja opnum ráði við það verk.

„Það er mat bæjarstjórnar Vestmannaeyja að á meðan sigla á í Landeyjahöfn á óhentugri ferju (Herjólfi) og sinna dýpkun á gömlu og bilanagjörnu dýpkunarskipi þá verða frátafir langt umfram það sem annars væri. Bæjarstjórn óskar eftir skýrum svörum frá innanríkisráðherra og öðrum þeim sem um málið fjalla um það hvað á að gera til að leysa þann bráðavanda sem enn er uppi hvað Landeyjahöfn varðar. Þá ítrekar bæjarstjórn enn og aftur mikilvægi þess að tafarlaust verði ráðist í hönnun og smíði nýrrar ferju í stað núverandi Herjólfs,“ segir í ályktuninni sem birt er á vef Eyjafrétta. 

Fyrri ferð Herjólfs var felld niður í dag vegna bilunar í stýrisbúnaði ferjunnar. Viðgerðir standa yfir og er ekki ljóst hvort seinni ferðin verður farin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert