Þarf atbeina sýslumanns til vörslusviptingar
Ef ekki liggur fyrir réttarágreiningur er rétt að skila bifreið gegn réttmætu uppgjöri en annars þarf heimild dómara og atbeina sýslumanns til vörslusviptingar. Þetta er mat talsmanns neytenda.
Undanfarið hefur talsvert verið fjallað um hvort einhliða vörslusvipting bifreiðar stenst ef vörslusvipting fer fram án heimildar dómara og án atbeina sýslumanns. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir að þetta standist ekki.
Gísli leggur áherslu á að aðeins sé tilefni til vörslusviptingar ef réttarágreiningur er um greiðslur eða uppgjör skulda, svo sem í kjölfar endurútreiknings ólögmætra gengistryggðra lána til neytenda samkvæmt dómum Hæstaréttar í fyrra og samkvæmt lögum sem Alþingi setti í kjölfarið.
„Ef ekki er ágreiningur um rétt eða skyldu aðila samningsins - t.d. neytanda og eignarleigufyrirtækis (sem eru að vísu flest deildir í bönkunum nú) - er væntanlega engin ástæða til vörslusviptingar. Ef neytandi viðurkennir að skulda tiltekna fjárhæð en getur t.d. ekki greitt það sem honum ber afhendir hann væntanlega bifreiðina í samræmi við réttmætt uppgjör - nema um annað sé samið - enda hafa neytendur gjarnan skrifað undir skilaskyldu ef svo stendur á. Engin ástæða er til þess að leggja þann kostnað á réttarvörslukerfið annars vegar og hins vegar á kröfuhafa - og þar með á alla skattgreiðendur og neytendur - að sækja bifreið með vörslusviptingu ef efnislegur ágreiningur er ekki fyrir hendi. Getur synjun um afhendingu í sjálfu sér verið ólögmæt og jafnvel bótaskyld ef skilyrði bótaskyldu eru að öðru leyti uppfyllt; ekki er því hægt að ráðleggja neytendum að synja um afhendingu nema réttmætar ástæður liggi að baki.
Ef ágreiningur er um fjárhæð skuldar en ekki um greiðsluskyldu, þ.e. neytandi viðurkennir að skulda eitthvað er eðlilegt að leita samninga um það.“
Niðurstaða lögfræðilegrar úttektar Gísla er sú að „atbeina sýslumanns“ þurfi til vörslusviptingar vegna ágreinings um bílalán.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 31. ágúst 2011, Innlent Dómsúrskurður skilyrði fyrir vörslusviptingu
- Fimmtudagur, 22. mars 2012, Innlent Kæra ákvörðun sýslumanns
- Föstudagur, 11. maí 2012, Innlent Ekki vörslusvipt gegn mótmælum
- Fimmtudagur, 1. mars 2012, Innlent Hætt verði að senda út greiðsluseðla
- Þriðjudagur, 21. febrúar 2012, Innlent Senda innanríkisráðherra kvörtun
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































