Framlag til tekjuhárra sveitarfélaga verði skert
Innanríkisráðuneytið segir að breytingar séu fyrirhugaðar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í þá átt að skert verði að fullu jöfnunarframlag til þeirra sveitarfélaga sem hafa heildartekjur sem eru 50% umfram landsmeðaltal.
Á þessu ári nema áætluð framlög úr sjóðnum til sveitarfélaga með mögulegar heildartekjur sem eru 50% umfram landsmeðaltal um 132 milljónum kr. Er því lagt til að jöfnunarframlög til þeirra sveitarfélaga sem séu með það háar tekjur umfram landsmeðaltal verði skert að fullu á næsta ári, hvað varðar jöfnunarframlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Fram kemur á vef ráðuneytisins að starfshópur sem endurskoðaði regluverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafi skilað tillögum sínum um breytingar á regluverki sjóðsins sumarið 2010. Tillögurnar hafi verið til umfjöllunar á ársfundum Jöfnunarsjóðs árin 2010 og 2011. Nú þegar hafi farið fram nauðsynlegar breytingar á núverandi kerfi sem einkum felist í breytingu á útreikningi framlags til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts, almennu jöfnunarframlagi til reksturs grunnskóla og framlagi vegna skólaaksturs úr dreifbýli.
Þá segir að starfshópurinn hafi jafnframt bent á að framlög sjóðsins taki ekki með nægjanlega skýrum hætti mið af útgjaldaþörf sveitarfélaganna og hafi mörg verkefni bæst við sem hafi hvorki með útgjaldaþarfir þeirra né tekjumöguleika að gera. Ástæðurnar megi rekja til þess að verkefnin séu tilkomin vegna samninga ríkis og sveitarfélaga um fjármálaleg samskipti en afleiðingarnar hafa meðal annars verið þær að sveitarfélög sem ekki hafa þörf fyrir framlög úr Jöfnunarsjóði vegna hárra tekna fá að hluta til óskert framlög úr sjóðnum.
Þróa verði nákvæmt kerfi til að meta útgjaldaþörf sveitarfélaga
„Lagði starfshópurinn því til að þróað yrði nákvæmt útgjaldajöfnunarkerfi sem gefi nauðsynlegan grunn til að meta útgjaldaþörf sveitarfélaga. Í kjölfarið skipaði innanríkisráðherra vinnuhóp sem settur var á laggirnar í lok árs 2010 til að þróa útgjaldamælingarkerfi sem ætlað er að endurspegla sem best útgjaldaþarfir sveitarfélaga vegna lögbundinna og venjubundinna verkefna. Hefur hópurinn skoðað útgjaldaþörf sveitarfélaganna að teknu tilliti til tekna þeirra og áætlaðra framlaga ársins 2011.
Með tilvísun til þessa hefur vinnuhópurinn meðal annars komist að því að til sveitarfélaga með mögulegar heildartekjur 50% umfram landsmeðaltal eru áætluð framlög úr sjóðnum er nema 132 milljónum króna á árinu 2011. Leggur vinnuhópurinn því til að jöfnunarframlög til þeirra sveitarfélaga sem eru með það háar tekjur umfram landsmeðaltal verði skert að fullu á árinu 2012 hvað jöfnunarframlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga varðar. Hafa breytingarnar áhrif á útgjaldajöfnunarframlög, framlög tengd yfirfærslu grunnskólans og fasteignaskattsframlög sjóðsins,“ segir í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu.





































