Starfsmönnum fjölgað vegna eldgosahættu

Gosmökkurinn frá Eyjafjallajökli í fyrra. stækka

Gosmökkurinn frá Eyjafjallajökli í fyrra. mbl.is/Kristinn

Gert er ráð fyrir að starfsmönnum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra verði fjölgað um tvo á næsta ári vegna viðvarandi eldgosahættu. Verður fjárframlag til stofnunarinnar aukið um 20 milljónir króna vegna þessa.

Fram kemur í nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar Alþingis, að á undanförnum fjórum árum hafi viðbragðskerfi almannavarna undir stjórn almannavarnadeildar í Samhæfingar- og stjórnstöðinni í Skógarhlíð tekist á við hvert stórverkefnið á fætur öðru á hverju ári: jarðskjálfta 2008, viðbrögð vegna svínaflensu 2009, eldgosin í Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli 2010 og eldgosið í Grímsvötnum 2011. Eftir því sem sérfræðingar segi sjái ekki fyrir endann á eldgosahættu og hættuástandi af þeim sökum.

Ljóst sé að ekki verði lengur við það ráðið að sinna sífellt fleiri og umfangsmeiri verkefnum á sviði almannavarna með eingöngu fimm starfsmönnum. Nú sé svo komið að þessi aðgerðastörf og aðgerðastjórn almannavarnadeildar krefjist svo mikils vinnuálags að starfsmenn ná ekki fullnægjandi hvíld, mikilvæg og brýn verkefni á sviði almannavarna komist ekki til framkvæmda og önnur brýn verkefni á sviði undirbúnings, viðbragðsáætlanagerðar o.fl. hafi frestast.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Oddsskarð.

Átta manns í rútu sem valt

20:40 Átta manns voru um borð í lítilli rútu sem fór út af veginum í Oddskarði rétt fyrir klukkan 20 um kvöld. Veginum er nú lokað. Ekki er vitað til að neinn hafi slasast alvarlega, en björgunarsveitir eru að flytja fólkið úr skarðinu. Meira »
Á Fjarðarheiði.

Flutningabíll valt á Fjarðarheiði

20:37 Stór flutningabíll með eftirvagn, s.k. trailer, valt á Fjarðarheiði ofan Seyðisfjarðar í vonskuveðri um sjöleytið í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum voru tveir menn í bílnum og sat annar þeirra fastur. Meira »

Lést í bílslysi í Tansaníu

Gunnar Örn Gunnarsson
20:29 Íslenski pilturinn sem lést í bílslysi í Tansaníu síðastliðinn laugardag hét Gunnar Örn Gunnarsson. Hann bjó í Helsingborg í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni. Meira »

Perlan fái hlutverk við hæfi myndskeið

Perlan1
20:15 Hugmyndir um að Perlan hýsi Náttúruminjasafn Íslands, sem lög gera ráð fyrir að rísi, hafa hlotið mikinn byr að undanförnu. Árni Hjartarson, formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags, segir að samskipti við stjórnarformann OR hafi verið afar jákvæð og að margir hafi tekið undir hugmyndina. Meira »

Skafrenningur á Austurlandi

19:03 Hríð á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Meira »

Oddsskarð lokað vegna slyss

20:22 Vegurinn um Oddsskarð er lokaður vegna umferðaróhapps, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.  Meira »

Styttist í hrognafrystingu

Loðnuhrognavinnsla hjá HB Granda Akranesi
20:02 Góður kraftur hefur verið í loðnuveiðum síðustu tvær vikur og nú styttist í að hrognafyllingin í loðnunni og þroski hrognanna gefi tilefni til að hægt verði að hefja hrognatöku og –frystingu. Meira »

Fundaði með fulltrúum sveitarfélaga

Jóhanna Sigurðardóttir
19:01 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með fulltrúum forsvarsmanna landhlutasamtaka sveitarfélaga. Ræddi hún á fundinum um hvaða kostir eru í stöðunni varðandi verkefni á landsbyggðinni. Meira »

Leitar hjálpar vegna Aratúns-dóms

Aratúnið Málið spratt upp eftir skrif um Aratúnsfjölskylduna á bloggsíðu.
18:33 „Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli vegna s.k. Aratúnsmáls. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð Meira »

Unglingspilts enn leitað

Guðmundur Árnason.
18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi þann 17. febrúar sl. Meira »

Vilja lækka olíugjald

18:32 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja í dag fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að olíugjald verði lækkað umtalsvert.  Meira »

Ósáttur við að vera þjófkenndur

Frá Landmannalaugum - mynd úr safni
18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem voru í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Svartir sauðir á hálendinu

Landmannalaugar
16:27 Stjórn Ferðafélags Íslands íhugar að loka öllum skálum félagsins yfir vetrartímann vegna slæmrar umgengni í þeim. Um liðna helgi voru þrír hópar í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum og var lítill svefnfriður í skálanum vegna skrílsláta eins hópsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
KENNI Á BMW 116I
Kenni á BMW 116i Snorri Bjarnason, sími 892 1451. Bilaskoli.is...
Sölu GMC 2500 serrie
Til sölu GMC 1998 með bilaða vél óska eftir tilboði S : 848 8224...
Skii-doo MXZ Renegade
Til sölu Skii-doo MZX Renegade 800. Árg. 2007 en keyptur nýr í janúar 2008. Aðei...
RÝMINGARSALA
Rýmingasala á vörubíladekkjum 13 R 22.5 kr. 39.500 + vsk. 1...
 
Stúkan lilja
Félagsstarf
l LILJA 6012022219 I...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Framkvæmdastjóri Slysavarnafélagið La...
Tölvunarfræðingur - forritari
Tölvur/upplýsingatækni
Tölvunarfræðingur - forritari Námsgag...
Hlutabréf til sölu í útflutningsfyrirtæki

Hlutabréf til sölu í útflutningsfyrirtæk...