Verkalýðsfélög styrkja Mæðrastyrksnefnd
Á myndinni má sjá Jónu Bertu Jónsdóttur og Björgu Hansen, fulltrúa Mæðrastyrksnefndar, ásamt nokkrum fulltrúum félaganna sjö sem færðu nefndinni gjöfina.
Sjö verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð kr. 1.770.000 sl. föstudag. Jóna Berta Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar.
Félögin sjö sem færðu nefndinni styrk eru Eining-Iðja, Fagfélagið, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrennis, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjómannafélag Ólafsfjarðar og Verkstjórafélag Akureyrar og nágrennis.
Í tilkynningu, sem félögin sendu, segir að Jóna Berta hafi þakkað fyrir stuðninginn og sagt að þetta kæmi að góðum notum. Hún sagði einnig að þeir sem þurfi á aðstoð að halda þyrftu að koma í húsnæði Mæðrastyrksnefndar dagana 8. til 10. desember nk. milli kl. 13 og 17 og skrá sig. Þeir sem ekki geta mætt á svæðið geta hringt í síma 868 3143 eða 460 4617 á sama tíma.
Afhending fer svo fram dagana 16. til 19. desember í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem Mæðrastyrksnefnd er til húsa. Gengið inn að vestan frá Þórunnarstræti. Það er alltaf opið á þriðjudögum frá kl. 13.00 til 18.00 og þá daga sem úthlutun fer fram verður opið á sama tíma.
Vakin er athygli á því að Mæðrastyrksnefnd Akureyrar aðstoðar fólk um allan Eyjafjörð, frá Siglufirði að Grenivík, og starfar allan ársins hring þótt mestu annirnar séu nú eins og jafnan áður í kringum jólahátíðina.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 2. nóvember 2011, Innlent Rannsóknir á öldruðum styrktar
- Þriðjudagur, 1. maí 2012, Innlent Samkomur á 38 stöðum á landinu
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































