Eins og blaðafulltrúi Saddams

Frá Alþingi. stækka

Frá Alþingi. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði á Alþingi í dag, að ummæli þingflokksformanns Samfylkingarinnar um árangur ríkisstjórnarinnar minntu sig á blaðafulltrúa Saddams Husseins, sem lýsti í sjónvarpsviðtali fjálglega sigrum íraska hersins en í baksýn sáust bandarískir skriðdrekar í Bagdad.

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í dag að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefði ekki lokið ætlunarverki sínu að reisa Ísland upp úr hruni efnahagslífs og samfélags en það verk væri komið vel á veg. Hún sagði m.a. að árangur hefði náðst í ríkisfjármálum sem tekið væri eftir, lokið yrði breytingum á fiskveiðikerfinu, endurskoðun stjórnarskrár væri komin vel á veg, lokið yrði aðildarviðræðum við ESB, atvinnulíf eflt og unnið gegn atvinnuleysi.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að ræða Oddnýjar hefði verið áhugaverð þegar hún lýsti dásemdum ríkisstjórnarinnar.

„Ég man eftir svona ræðu. Hún var flutt í beinni útsendingu í fréttatíma af blaðafulltrúa Saddams Husseins sem lýsti því að íraski herinn væri algerlega að taka Bandaríkjamenn í gegn. Í baksýn voru skriðdrekarnir sem voru að fara inn,“ sagði Guðlaugur.

Þingmenn kölluðu nú til Guðlaugs og heyrðist hrópað „þvílík smán“ og „skammastu þín“.

Nokkru síðar kom Guðlaugur Þór að nýju í ræðustól og sagðist að gefnu tilefni vilja lýsa þvi yfir að ekki hefði átt að skilja orð hans þannig, að hann væri að bera saman stjórnarliða á Alþingi og ógnarstjórn Saddams Husseins. Sagðist hann biðjast afsökunar ef einhverjir hefðu skilið orð hans þannig og að hann vonaði að sú afsökunarbeiðni yrði tekin til greina.

Árni Þór Sigurðsson þingmaður sagðist telja að ummæli Guðlaugs Þórs hefðu verið smánarleg og forseti þingsins hefði átt að gera við þau athugasemd. Sérstaklega vegna þess, að hópur fólks frá Palestínu, sem hefði búið við ógnarstjórn Saddams, væri á þingpöllum Alþingis í dag. Guðlaugur Þór væri þó maður að meiri að hafa beðist afsökunar.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagðist telja ræðu Árna Þórs algerlega ómaklega. Guðlaugur Þór hefði ekki verið að líkja neinum við neinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Enskur stofusófi
Flottur sófi til sölu vegna flutnings. Verðhugmynd 30.000 kr. Upplýsingar í sí...
HYMER FEELING 430 - Létt og meðfærilegt hjólhýsi
HYMER Feeling 430 eru með fullkomnustu smá-hjólhýsum á markaði. Hymer eru eins...
PORSCHE CAYENNE Sport 2004
Eldsneyti / VélBensín 8 strokkar4.500 cc.351 hö. 2.305 kg.Drif / Stýrisbúnaður...
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
 
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....