Heppilegra að fá annan

Ríkislögreglustjórinn fékk LEX lögmannsstofu til að vinna lögfræðiálit um ábendingar Ríkisendurskoðunar. stækka

Ríkislögreglustjórinn fékk LEX lögmannsstofu til að vinna lögfræðiálit um ábendingar Ríkisendurskoðunar. Árni Sæberg

Heppilegra væri að fá annan en skipaðan ríkisendurskoðanda til að stýra rannsókn sem ríkisendurskoðandi hefur nú hafið á ráðstöfun fjármuna Ríkislögreglustjórans (RSL)  til þess að auka trúverðugleika rannsóknarinnar.

Þetta kemur m.a. fram í álits álitsgerð LEX lögmannsstofu sem unnin var vegna ábendinga Ríkisendurskoðunar um innkaup löggæslustofnana. Ríkislögreglustjóri hefur nú birt álitsgerðina og fylgir hún í viðhengi.

Meginniðurstöður LEX eru m.a. þær að ætla megi „að Ríkisendurskoðun hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt við rannsókn á því og ábendingu um hvort RLS hafi við innkaup farið að ákvæðum laga nr. 84/2007 um opinber innkaup.“

Einnig segir þar að verulegur vafi leiki á um að RLS hafi borið að bjóða út viðskipti sín við fyrirtækið Trademark ehf. Þá er það mat LEX að Ríkisendurskoðun sé ekki til þess bær að lögum „til að leggja mat á og endurskoða matskennda ákvörðun RLS um að neyðarástand hafi réttlætt undanþágu frá útboðsskyldu.“

Loks segir í samantektinni: „Þrátt fyrir efnislega niðurstöðu Ríkisendurskoðunar og ummæli ríkisendurskoðanda um að RLS hafi farið gegn lögum um opinber innkaup, verður að telja ólíklegt að það eitt og sér nægi til að ríkisendurskoðandi teljist vanhæfur til frekari afgreiðslu mála er tengjast RLS.

Þar sem ekki hefur verið skorið úr um ágreining RLS og Ríkisendurskoðunar um bærni síðargreindu stofnunarinnar til að meta lögmæti matskenndrar ákvörðunar RLS, verður þó að telja óheppilegt að skipaður ríkisendurskoðandi komi að meðferð áþekkra mála hvar ráðstöfun RLS á fjármunum er til sérstakrar skoðunar Ríkisendurskoðunar.

Heppilegra væri í því skyni að auka trúverðugleika rannsóknar þeirrar sem ríkisendurskoðandi hefur nú hafið að öðrum til þess hæfum einstaklingi yrði sérstaklega falið að stýra henni.“

PDF-skrá Álitsgerð LEX lögmannsstofu fyrir Ríkislögreglustjórann
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hjólhýsi TEK 585TKM árgerð 2004
Verð 2.500.000 Hjólhýsið er á loftpúðum, þannig að það er mun léttara og mýkra ...
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Burðarsjöl og burðarpokar í miklu úrvali. Henta börnum frá fæðingu til þriggj...
Vor í Tungunum - www.eyjasolibudir.is
Falleg sumarhús til leigu um helgar og virka daga. Fallegt umhverfi. Heit laug o...
Breyttar felgur 15" 6 gata f. Toyota eða Patrol t.d.
TS 15" breyttar felgur. Þær eru tæplega 18" breiðar með valsaða kanta frá GJJá...
 
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...