10 mál til rannsóknar
Rannsókn hófst í dag hjá embætti sérstaks saksóknara á níu málum, sem tengjast starfsemi Glitnis banka fyrir hrun. Samhliða er unnið áfram við rannsókn á svokölluðu Stím máli, en sú rannsókn hófst á síðasta ári. Handtökur og yfirheyrslur fóru í dag fram hjá embættinu vegna þessara mála.
Í tilkynningu frá embætti sérstaks saksóknara segir, að til rannsóknar sé eftirgreind háttsemi:
- Kaup eigin viðskipta Glitnis á hlutabréfum útgefnum af bankanum á verðbréfamarkaðinum. Einnig kaup bankans og ráðstöfun á hlutabréfum útgefnum af FL Group.
- Lánveitingar til ýmissa félaga vegna kaupa á hlutabréfum útgefnum af bankanum í lok árs 2007 og á árinu 2008. Upphaflegur höfuðstóll nefndra lánveitinga er talinn nema samtals tæpum 37 milljörðum króna.
- Viðskipti með framvirka samninga í hlutabréfum útgefnum af bankanum.
- Sölutrygging Glitnis á 15 milljarða hlutafjárútboði FL Group áramótin 2007 og 2008.
Til rannsóknar er grunur um meint brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við ráðstafanir á fjármunum bankans, brot á lögum um verðbréfaviðskipti, lögum um fjármálafyrirtæki, lögum um ársreikninga og lögum um bókhald.
Embættið segir, að um sé að ræða rannsóknir á fjölmörgum tilvikum og um háar fjárhæðir sé að tefla. Ljóst sé að yfirheyra þurfi allstóran hóp manna í tengslum við rannsóknirnar.
Málunum var vísað til embættis sérstaks saksóknara annarsvegar með kærum frá Fjármálaeftirlitinu og hinsvegar með tilkynningum frá slitastjórn Glitnis á þessu ári en málin hafa verið til meðferðar síðan.
Í morgun hófust yfirheyrslur yfir sakborningum og vitnum í málunum en ráðgert er að yfirheyrslur haldi áfram næstu daga. Alls tóku um 60 starfsmenn embættisins þátt í aðgerðunum í dag.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 2. desember 2011, Innlent Gæsluvarðhald staðfest
- Miðvikudagur, 30. nóvember 2011, Innlent Annar í gæsluvarðhald
- Þriðjudagur, 16. nóvember 2010, Innlent Leitað á 16 stöðum
- Fimmtudagur, 1. desember 2011, Innlent Glitnisforstjóri í gæsluvarðhald
- Miðvikudagur, 17. nóvember 2010, Innlent Enginn í haldi í Glitnismáli
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































