Íbúarnir fengu enga kynningu
Hella í Rangárþingi ytra. www.mats.is
Jón Pétur Jónsson„Við erum slegin yfir þessu,“ segir Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, vegna ákvörðunar um að sameina heilsugæsluþjónustu í Rangárþingi og loka heilsugæslustöðinni á Hellu. Gunnsteinn gerir alvarlegar athugasemdir við að skortur hafi verið á samráði við sveitarfélagið.
„Við erum afar ósátt við það hvernig að þessu er staðið,“ segir Gunnsteinn, sem mun funda í dag með forsvarsmönnum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU). Þá hefur hann óskað eftir fundi með velferðarráðherra vegna málsins.
Hann segir ljóst að sveitarfélagið hafi staðið frammi fyrir niðurskurði í heilbrigðiskerfinu í nokkuð langan tíma, sérstaklega eftir að núverandi ríkisstjórn komst til valda. Gunnsteinn viðurkennir aftur á móti að það hafi verið þörf á ákveðinni hagræðingu.
„En þegar þjónusta er farin að skerðast í því magni sem þjónustan hefur verið skert núna á síðustu misserum, þá verður nú aðeins að fara að gæta að málum.“ Gengið sé harkalega fram gegn landsbyggðinni. Gunnsteinn segir að hún hafi ekki notið góðærisins í sama mæli og höfuðborgarsvæðið en hún verði hins vegar að þola meiri niðurskurð í kjölfar bankahrunsins.
Gunnsteinn bendir á að upp úr áramótunum síðustu hafi verið tilkynnt um breytt fyrirkomulag í heilsugæsluþjónustu í Rangárþingi. M.a vegna vaktþjónustu hjá læknum og þá hafi símsvörun verið breytt, en ákveðið hafi verið að svara öllum símtölum á Selfossi.
„Ég hef talið að þetta væru aðilar sem væru hæfir til að taka faglegar ákvarðanir. En þeir gleymdu hins vegar að kynna þessar breytingar fyrir íbúum hér í vesturhluta sýslunnar.“
Viðurkenndu mistök
Þegar ákvörðunin er tekin í upphafi árs kom þetta eins og skrattinn úr sauðarleggnum fyrir íbúana í Rangárþingi ytra og Ásahreppi að sögn Gunnsteins. Hann bendir á að ákvörðunin hafi hins vegar verið kynnt fyrir íbúum Rangárþings eystra.
„Þarna eru gerð mistök og þeir [forsvarsmenn HSU] viðurkenndu það og komu til fundar við sveitarstjórnirnar tvær, sem voru undanskildar í þessum kynningum. Og báðust afsökunar á því,“ segir Gunnsteinn. Þeir hefðu tekið fram að um reynslutímabil væri að ræða og niðurstaðan yrði svo kynnt íbúunum. Gunnsteinn segir að reynslutímabilinu hafi lokið fyrir nokkru.
„Þarna er komin bláköld niðurstaða og við höfum engar kynningar fengið. Mér finnst klaufalega að þessum málum staðið því þeir hafa ekki haft nokkurt samráð við okkur hér.“ Nú liggi fyrir að heilsugæslunni á Hellu verði lokað en það verði hins vegar opið á Hvolsvelli.
Forsvarsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands hafi fundað um málið við sveitarstjórn Rangárþings eystra um málefni heilsugæslunnar 8. september sl. en hafi svo ekki frumkvæði að því að ræða við sveitarstjórnir í ytri hluta sýslunnar í kjölfarið.
Ólíðandi að hafa ekki samráð
Gunnsteinn segist hafa rætt málið við Magnús Skúlason, forstjóra HSU, í byrjun október. Hann hafi sínar skýringar en þá hafi hann ekki gefið neitt út um að sameining væri í farvatninu. Málið líti klaufalega út og komi mjög illa við íbúana.
Aðspurður segist Gunnsteinn hafa heyrt að niðurskurðurinn á Hellu samsvari þremur stöðugildum. „Það er gríðarlega stórt í samfélagi eins og þessu. Fyrir utan það er þjónustuskerðingin gríðarleg.“ Það sé algjörlega ólíðandi að hafa ekki samráð í svona máli.
„Þetta eru mjög kaldar kveðjur,“ segir Gunnsteinn og bætir við að menn verði að rökstyðja það á faglegan hátt af hverju ákveðið hafi verið að loka heilsugæslustöðinni á Hellu en halda þeirri á Hvolsvelli opinni.






































