Meta umhverfisáhrif vegna kísilmálmverksmiðju
Vinna er hafin við mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðrar byggingar á kísilmálmverksmiðju PCC SE á iðnaðarsvæðinu á Bakka á Húsavík, sem geti framleitt allt að 66 þúsund tonnum á ári af kísilmálmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá verkfræði- og ráðgjafarfyrirtækinu EFLU.
Fram kemur í tilkynningu að PCC sé alþjóðlegur hópur fyrirtækja í eigu PCC SE sem sé eignarhaldsfélag með höfuðstöðvar í Duisburg í Þýskalandi. Þá segir að PCC SE hafi falið EFLU verkfræðistofu að annast mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
150 störf skapist við rekstur verksmiðjunnar
„Samstarfssamningur hefur verið gerður milli sveitarfélagsins Norðurþings og PCC SE um verkefnið sem felst í uppbyggingu á verksmiðju á Bakka til framleiðslugetu allt að 66.000 tonnum á ári af kísilmálmi. Verksmiðjan verður reist í tveimur áföngum, sá fyrri verður 33.000 tonn á ári. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan rísi á um 20 ha á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Samningaviðræður standa yfir milli fyrirtækisins og Landsvirkjunar um kaup á orku til verksmiðjunnar en heildarorkuþörf hennar verður um 52 MW í upphafi og 104 MW þegar stækkun er lokið
Áætlað er að 150 framtíðarstörf skapist við rekstur kísilmálmverksmiðjunnar að ótöldum þeim störfum sem skapast á svæðinu vegna kaupa verksmiðjunnar á orku og þjónustu.
Frá 1. desember til 22. desember verða til kynningar drög að tillögu að matsáætlun þar sem grein er gerð fyrir framleiðslunni og áhersluþáttum mats á umhverfisáhrifum sem nú er að hefjast,“ segir í tilkynningunni.
Kynningarfundur á Húsavík 13. desember
Þá segir að Norðurþing og PCC SE hafi boðað til opins kynningarfundar um verkefnið sem verði haldinn í Fosshóteli á Húsavík kl. 17:30 þann 13. desember.
„Í dag eru fyrirtæki PCC með starfsemi í 13 löndum með um 2.200 starfsmenn. Starfsemin nær yfir þrjár megingreinar: efnaframleiðslu, orkuframleiðslu og flutninga (logistics). Áætluð velta ársins 2011 er alls um 620 milljónir evra.
Meðal fyrirtækja í PCC er efnaverksmiðja í Wroclaw í Póllandi sem er ein stærsta verksmiðja sinnar tegundar í landinu, þar sem framleidd eru efni fyrir plastiðnað, húsgagnaframleiðslu og efni fyrir framleiðslu á þvotta- og hreinsiefnum. Meðal helstu framleiðsluvara PCC eru einnig kaldsvampur sem notaður er í hágæða heilsudýnur.
Á sviði orkuframleiðslu hefur PCC einbeitt sér að vinnslu á raforku úr endurnýjanlegum orkugjöfum og samvinnslu raf- og varmaorku í verkefnum í Austur- og Suðaustur-Evrópu. Þar hefur PCC einkum tekið þátt í verkefnum í verndun loftslags á Balkanskaga með byggingu smárra vatnsaflsvirkjana. Fyrsta vatnsaflsvirkjun PCC hóf að framleiða rafmagn í febrúar 2009.
Á sviði flutninga hefur orðið aukning í umsvifum PCC í gámaflutningum í Póllandi og lestarflutningum í Rússlandi,“ segir ennfremur í tilkynningunni.





































