Ráðin framkvæmdastýra Evrópustofu

Birna Þórarinsdóttir stjórnmálafræðingur
Birna Þórarinsdóttir stjórnmálafræðingur

Birna Þórarinsdóttir stjórnmálafræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastýra Evrópustofu – upplýsingamiðstöðvar ESB, sem opnuð verður eftir áramótin. Markmið Evrópustofu er að veita hlutlægar upplýsingar og auka umræðu, þekkingu og skilning á eðli og starfsemi ESB.

Birna var yfirmaður verkefnaskrifstofu UNIFEM (nú UN Women) í Serbíu og Svartfjallalandi 2008-2010 og framkvæmdastýra landsnefndar UNIFEM á Íslandi 2004-2006. Hún hefur starfað sem ráðgjafi og þjálfari fyrir utanríkisráðuneytið og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) í jafnréttismálum. Þá hefur Birna kennt við bæði Háskóla Íslands og Háskólann á Bifröst.

Birna er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í alþjóðlegum öryggismálafræðum frá Georgetown University í Bandaríkjunum.



Evrópustofa verður rekin af Athygli ehf. og þýska almannatengslafyrirtækinu Media Consulta. Starfsemi stofunnar er fjármögnuð af Evrópusambandinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert