Tjón Eymundsson um 40 milljónir
Húsið fylltist af reyk og mikið vatn barst inn í bókabúð Eymundsson sem er á fyrstu hæð hótelsins. Eyjafréttir/Júlíus G. Ingason
Tjón Eymundsson vegna skemmda af völdum eldsvoða í Vestmannaeyjum í nótt gæti numið um 40 milljónum, að mati Ingþórs Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra verslunarsviðs Eymundsson. Kapp er lagt á að opna nýja búð í Eyjum sem fyrst.
Ingþór sagði gert ráð fyrir að allar vörur, tæki og innréttingar vær ónýtar. Eymundsson var með bókaverslun, kaffihús og rak einnig afgreiðslu fyrir Símann á jarðhæð Drífanda. Hótel Eyjar var á efri hæðum hússins. Þar braust út eldur um klukkan þrjú í nótt.
Húsið fylltist af reyk og mikið vatn barst niður í bókabúðina.
„Við gerðum ráðstafanir í morgun til að endurpanta vörur í nýja verslun. Við erum að leita að húsnæði og það er ýmislegt í deiglunni,“ sagði Ingþór. Hann sagði stefnt að því að opna verslun á nýjum stað eftir örfáa daga.
Nú þegar er komið fólk á vegum Eymundsson til Eyja að sinna fyrirtækjum með rekstrarvörur og verður haldið uppi fullri þjónustu við fyrirtækin í Eyjum. Þá verður reynt að opna bókabúðina svo fljótt að Vestmannaeyingar fari ekki á mis við þjónustu. Búið er að færa verslun Símans sem var í Eymundsson í raftækjaverslunina Geisla.
Ingþór sagði að samkvæmt lauslegu mati hefðu verið birgðir í búðinni að andvirði 20-30 milljónir. Þá var þar kaffihús með húsbúnaði og tækjum. Húsnæðið var nýlega tekið í gegn og gólfefni, innréttingar, lýsing og rafmagn endurnýjað.
„Þetta er svolítið stórt tjón fyrir okkur því þetta var svo nýtt,“ sagði Ingþór. „Þetta var stórglæsilegt húsnæði og vel staðsett. Uppsetningin og umgjörðin þannig að hún hæfði þessari verslun mjög vel með kaffi, bækur og tímarit. Þetta var orðinn samkomustaður í bænum.“
Að öllu samanlögðu áætlaði Ingþór að tjónið gæti verið nálægt 40 milljónum króna. Hann sagði að byrjað væri að skoða málið í samvinnu við tryggingafélag.
„Við finnum mikinn velvilja hjá Vestmannaeyingum og það eru allir boðnir og búnir að aðstoða okkur,“ sagði Ingþór.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 2. desember 2011, Innlent Ný bókaverslun í Eyjum á mánudag
- Miðvikudagur, 30. nóvember 2011, Innlent Eldur blossaði aftur upp
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Miðvikudagur, 30. nóvember 2011, Innlent Hótelbruni í Eyjum
- Fimmtudagur, 16. desember 2010, Innlent Mikill verðmunur á bókum
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































