Fréttaskýring: Glitnisforstjóri í gæsluvarðhald
Ingi Ragnar Júlíusson er einn þeirra þriggja Glitnismanna sem eru í gæsluvarðhaldi mbl.is/Ómar Óskarsson
Á annan tug manna voru færðir til yfirheyrslna í gær vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á meintri markaðsmisnotkun og auðgunarbrotum í tengslum við viðskipti Glitnis. Farið var fram á gæsluvarðhald yfir fjórum mönnum og voru þrír úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald, þeirra á meðal Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis.
„Við yfirheyrðum á milli tíu og tuttugu í dag,“ sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Ólafur vildi ekki gefa upp hvort fólkið hefði verið handtekið á vinnustöðum eða á heimilum sínum. „En þetta fór allt saman vel fram, hvorki handjárnum né annarri valdbeitingu var beitt,“ sagði Ólafur. Hann sagði að fréttaflutningur þess efnis að fólkið hefði vitað fyrirfram af handtökunum ætti ekki við rök að styðjast. „Við látum yfirleitt ekki vita af svona aðgerðum fyrirfram. Þeir sem voru handteknir verða að svara fyrir þetta sjálfir.“
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, var í héraðsdómi Reykjavíkur í gær úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. „Hann var úrskurðaður í varðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna; þannig að hann geti ekki haft áhrif á aðra í málinu eða skotið undan gögnum,“ sagði Ólafur. „Þetta helgast af því að um er að ræða mál sem verið er að opna rannsókn á.“
Hinir tveir eru Jóhannes Baldursson, fyrrverandi yfirmaður markaðsviðskipta hjá Glitni, og Ingi Rafnar Júlíusson, sem starfaði sem verðbréfamiðlari hjá bankanum. Gæsluvarðhaldskröfu yfir Elmari Svavarssyni, sem einnig starfaði sem verðbréfamiðlari hjá Glitni, var hafnað.
Hugsanlega fleiri í varðhald
Alls tóku um 60 starfsmenn embættis sérstaks saksóknara þátt í aðgerðunum í gær og ekki er útilokað að fleiri verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknarinnar sem beinist að lánveitingum og hlutabréfaviðskiptum Glitnis í viðskiptum tengdum FL Group og Stími. Ólafur Þór segir rannsóknina og yfirheyrslurnar í gær hafa gengið vel og yfirheyrslum verði haldið áfram í dag. „Það hefur verið góður gangur í rannsókninni,“ segir Ólafur.
Hann segir engar húsleitir hafa farið fram vegna rannsóknarinnar og áfram verði unnið í málinu næstu daga. „Við erum fyrst og fremst að skoða mál sem snúa að starfseminni í Glitni,“ sagði Ólafur, spurður að því hvort málið tengdist öðrum bönkum eða fjármálastofnunum.
En hvers vegna er verið að yfirheyra fólk fyrst núna vegna vinnubragða í banka sem var þjóðnýttur fyrir meira en þremur árum? Hefði ekki átt að gera þetta fyrir löngu? „Þetta eru náttúrlega fjölmörg mál og þau lágu nú ekki fyrir þegar hrunið varð. Okkur eru ennþá að berast mál, til dæmis barst mál til okkar fyrir nokkrum vikum. Ein af afleiðingum hrunsins er þessi eftirleikur og hann tekur einfaldlega tíma. Sérstaklega þegar um er að ræða stór og viðamikil sakamál.“
37 milljarða lán
Í tilkynningu sem embætti sérstaks saksóknara sendi frá sér í gær segir að rannsóknin snúi að kaupum eigin viðskipta Glitnis á hlutabréfum útgefnum af bankanum á verðbréfamarkaðinum. Einnig sé verið að rannsaka kaup bankans og ráðstöfun hans á hlutabréfum útgefnum af FL Group og lánveitingar til ýmissa félaga vegna kaupa á hlutabréfum útgefnum af bankanum 2007 og 2008. Upphaflegur höfuðstóll þessara lánveitinga er talinn nema samtals tæpum 37 milljörðum króna. Ólafur Þór segir að lánin hafi eingöngu verið til fyrirtækja, ekki sé um að ræða lán til einstaklinga.
Að auki eru til skoðunar viðskipti með framvirka samninga í hlutabréfum útgefnum af bankanum og sölutrygging Glitnis á 15 milljarða hlutafjárútboði FL Group áramótin 2007 og 2008. Ólafur Þór segir að þarna sé um háar fjárhæðir að ræða.
Málunum var vísað til embættis sérstaks saksóknara annars vegar með kærum frá Fjármálaeftirlitinu og hins vegar með tilkynningum frá slitastjórn Glitnis.
Á meðal þeirra mála sem heyra undir rannsóknina er Stím-málið svokallaða. Félagið Stím, sem upphaflega hét FS37, var búið til árið 2007 kringum fjárfestingar í bankanum sjálfum og FL Group. Viðskiptahættir félagsins þóttu ógagnsæir og leynd hvíldi yfir eignarhaldi þess, en síðar kom í ljós að Stím var í eigu Fons, félags í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar og Glitnir átti þriðjung í félaginu. Félagið eignaðist 4,3% hlut í Glitni og 4,1% í FL Group í nóvember 2007.
Yfirheyrður í fyrra
Stím seldi síðan hluta bréfa sinna í FL Group í desember 2007 og þá hafði virði þeirra rýrnað um 900 milljónir frá kaupunum mánuði fyrr. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem málefni Stíms koma til kasta sérstaks saksóknara, en fyrir rúmu ári, í nóvember í fyrra, var Lárus Welding yfirheyrður af sérstökum saksóknara vegna málsins, auk nokkurra fyrrverandi og þáverandi starfsmanna Glitnis, FL Group og Saga Fjárfestingarbanka.







































