Fagnar fé til Litla-Hrauns

Fangelsismálastjóri fagnar tillögu meirihluta fjárlaganefndar um að veittar verði 55 milljónir króna á næsta ári  til öryggismála í fangelsum. Þar af fara 50 milljónir til fangelsisins á Litla-Hrauni.

„Þetta er nákvæmlega það sem þurfti. Það þarf að tryggja uppbyggingu á Litla Hrauni. Við tókum nýlega saman lista yfir helstu atriði sem þyrfti að bæta þar og áætlað var að brýnustu úrlausnarefnin kostuðu 50 milljónir,” segir Páll Winkel fangelsismálastjóri.

Meðal þess sem hann segir fangelsið þarfnast eru leitarskanni, leitarhlið og aðstaða til að leita á gestum og í farangri. Einnig þarf að endurnýja ýmsan búnað eins og girðingar og öryggismyndavélar. Hugsanlega verður byggt við fangelsið í þessum tilgangi.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert