Fylgdust grannt með 40.000 tonna olíuskipi
Landhelgisgæslan fylgdist grannt með 40.000 tonna tankskipi sem lónaði um 40 sjómílur austur af Stokksnesi frá föstudegi til þriðjudags. Gæslan segir að full ástæða hafi verið til að fylgjast vel með skipinu, sem hafi verið með viðkvæman farm um borð.
Skipið er nú komið út úr íslensku efnahagslögsögunni.
Fram kemur á vef Gæslunnar að skipið heiti St. Heritage og sé olíuskip sem sé skráð á Marshall-eyum. Það hafi verið að sigla með fullfermi frá Murmansk í Rússlandi til Shetlandseyja þegar það hafi fengið fyrirmæli frá útgerðarfélagi sínu um að bíða austur af Stokksnesi eftir hagstæðari veðurskilyrðum.
Segir að varðstjórar Landhelgisgæslunnar hafi komið auga á skipið í ferilvöktunarkerfum og óskað eftir nánari upplýsingum um siglingu þess, en þar sem skipið hafi verið á alþjóðlegu hafsvæði hafi því ekki verið skylt að senda gögn varðandi siglinguna. Var beiðninni vel tekið og fengu varðstjórar upplýsingar sem óskað var eftir. Fékk skipið svo heimild útgerðar til að halda áfram siglingunni og er nú komið út úr íslensku efnahagslögsögunni.
Tekið er fram að skipið hafi allan tímann verið statt á alþjóðlegu hafsvæði þar sem siglingar séu frjálsar, en þó innan íslensku efnahagslögsögunnar.
„Full ástæða var því fyrir varðstjóra Landhelgisgæslunnar að fylgjast grannt með skipinu, enda viðkvæmur farmur um borð sem myndi valda miklum skaða ef eitthvað færi úrskeiðis. Bárust reglulegar skeytasendingar sl. daga frá skipinu þar sem það upplýsti um aðstæður,“ segir á vef Landhelgisgæslunnar.
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 27. janúar 2012, Innlent Verða að fljúga tvær saman
- Þriðjudagur, 10. apríl 2012, Innlent Skýrslutaka í dag
- Fimmtudagur, 16. febrúar 2012, Innlent Brúarfoss rak stjórnlaust
- Laugardagur, 5. maí 2012, Innlent Skipið stóð nánast á þurru á háfjöru
- Föstudagur, 6. maí 2011, Innlent Sótti veikan sjómann
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































