Launin lækkuðu eftir hrun en hækkuðu á ný

Það hefur verið nóg að gera hjá stjórn Fjármálaeftirlitsins síðustu árin. Laun stjórnarmanna hækkuðu árið ... stækka

Það hefur verið nóg að gera hjá stjórn Fjármálaeftirlitsins síðustu árin. Laun stjórnarmanna hækkuðu árið 2009. mbl.is/Sigurgeir

Launakostnaður vegna stjórnarmanna í Fjármálaeftirlitinu hefur hækkað úr 12,7 milljónum árið 2007 í 24 milljónir á næsta ári. Stjórnarmenn fá í dag 200 þúsund krónur á mánuði í laun, en stjórnarformaðurinn fær 600 þúsund krónur í laun. Laun hans voru hækkuð á árinu 2009 úr 220 þúsund krónum í 600 þúsund krónur.

Umræða um launakjör þeirra sem sitja í stjórn Fjármálaeftirlitsins hófust eftir að efnahags- og viðskiptaráðherra lagði fram frumvarp um breytingu á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Í greinargerð með frumvarpinu sagði: „Efnahags- og viðskiptaráðherra ákvarðar þóknun stjórnarmanna og að óbreyttu verður hún 24 millj. kr. á árinu 2012, samanborið við 13,5 millj. kr. í upphaflegri áætlun ársins 2011. Ákvörðun ráðherra grundvallast á mati á tíðni og tímalengd funda, samanburði við þóknun stjórna eftirlitsskyldra aðila, þeim viðamiklu takmörkunum sem stjórnarmenn sæta til öflunar annarra tekna og hæfniskröfum sem þeir þurfa að uppfylla.“

Síðar hefur komið fram að ákvörðun um breytingu á launum stjórnarmanna var síðast tekin haustið 2010, degi áður en nýr ráðherra settist í efnahags- og viðskiptaráðuneytið. Samt rata þessar upplýsingar fyrst fyrir sjónir almennings vegna fjárveitinga til FME árið 2012.

Launin hækkuðu úr 220 þúsund í 600 þúsund

En hver eru laun þeirra sem sitja í stjórn FME? Stjórnarformaðurinn er með 600 þúsund krónur á mánuði, en aðrir eru með 200 þúsund krónur. Launin voru í ársbyrjun 2007 120 þúsund krónur á mánuði og stjórnarformaður var með 240 þúsund krónur. Launin voru hækkuð myndarlega 1. október 2008, um svipað leyti og bankarnir voru að falla. Þá voru laun stjórnarmanna 260 þúsund og laun stjórnarformanns 520 þúsund krónur á mánuði. Launin voru þrívegis lækkuð á árinu 2009 og voru haustið 2009 komin niður í 110 þúsund krónur (stjórnarformaður með 220 þúsund).

Hinn 1. september 2010 voru laun stjórnarformanns hækkuð úr 220 þúsund í 600 þúsund á mánuði og gilti hækkunin afturvirkt til 1. mars. Þetta er 172% hækkun. Þau hafa verið óbreytt síðan. Laun almennra stjórnarmanna voru hækkuð 1. aprílúr 110 þúsund í 140 þúsund og 1. september í 200 þúsund. Síðan hefur einvörðungu verið gerð sú breyting að laun varamanna í stjórn eru nú þau sömu og laun aðalmanna.

Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu hefur engin breyting verið gerð á launum stjórnarmanna í FME frá ársbyrjun 2011 og ekki er fyrirhugað að gera neina breytingu á laununum á næsta ári.

Heildarlaunakostnaður vegna stjórnarmanna í FME var 12,7 milljónir árið 2008, 12 milljónir vegna 2009, 14,5 milljónir vegna 2010, 22,6 milljónir vegna 2011 og áætlaður kostnaður vegna ársins 2012 er 24 milljónir. Samkvæmt þessu hækkar launakostnaðurinn frá 2010 til 2012 um 65%.

Samkvæmt ársskýrslu Landsbanka fyrir árið 2010 fékk stjórnarformaður bankans um 440 þúsund krónur í laun á mánuði. Almennir stjórnarmenn í Landsbanka eru með 250 þúsund krónur í laun á mánuði.

Stjórnarmenn í Íslandsbanka eru með 350 þúsund krónur í laun á mánuði, en stjórnarformaðurinn er með 525 þúsund á mánuði.

Hafa unnið fyrir kaupinu

„Við þetta er því að bæta að stjórn FME hefur undanfarin ár haft mikla sérstöðu í samanburði við aðrar stjórnir stofnana hjá hinu opinbera. Álag á stjórnarmenn, eins og raunar starfsmenn stofnunarinnar, hefur verið gríðarlegt. Þann tíma sem ég var ráðherra fundaði stjórnin þannig vel á annað hundrað sinnum, sem gerði um 6,5 fundi að meðaltali á mánuði. Fundir eru oft langir og fyrir liggur mikið magn gagna sem stjórnarmenn þurfa að kynna sér fyrir fundi. Það er því í mínum huga enginn vafi á því að þeir sem hafa tekið að sér þetta starf hafa þurft að vinna fyrir kaupinu sínu.“

Þetta segir Gylfi Magnússon, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, í yfirlýsingu þar sem hann útskýrir þær breytingar sem gerðar hafa verið á launum stjórnarmanna í Fjármálaeftirlitinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TVÖ BARNAHJÓL 12"OG16" TIL SÖLU
ER MEÐ 2STK BARNAHJÓL ÓSKA EFTIR TILÐOÐI SÍMI 869-2798...
Flott sjónvarp til sölu!
29 tommu túbu sjónvarp frá Sony til sölu. Það er 8 ára gamalt og í góðu lagi. T...
50 vinsælustu vörurnar í netverslun femin.is
Kynntu þér fjölbreytt úrval í netverslun www.femin.is og yfir 7.000 vöruliði ! ...
2003 Honda Civic EX Great Condition
2003 Honda Civic EX 72,159 km(44,838 miles) Price / Verð: 1.198.000 Arnar ...
 
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...