„Óásættanleg niðurstaða fyrir Hafnfirðinga“

Hafnarfjörður. stækka

Hafnarfjörður. mbl.is

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag lánasamning við skilanefnd Depfa-banka. Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn voru afar óánægðir með niðurstöðuna, sem þeir segja óásættanlega fyrir Hafnfirðinga, og ekki síður að afgreiðslan hafi farið fram fyrir luktum dyrum.

Sjálfstæðismenn bókuðu við afgreiðsluna, að óviðunandi sé og ólýðræðislegt að svo mikill trúnaður ríki um kjör og önnur ákvæði samningsins að bæjarbúar verði ekki upplýstir um innihald hans og að afgreiðsla samningsins hafi farið fram fyrir luktum dyrum. „Augljóst er að meirihluti Samfylkingar og Vinstri grænna er að fresta því að taka á fjárhagsvandanum fram yfir næstu kosningar og reyna þannig að bjarga pólitísku lífi sínu. [...] Samningurinn sem nú liggur fyrir er óásættanleg niðurstaða fyrir Hafnfirðinga.“

Þá segir að með fyrirhuguðum samningi verði greiðslubyrði sveitarfélagsins gríðarleg á næstu árum og skilmálar í samningnum bindi hendur bæjarins til vaxtar og þróunar á komandi árum.

Ófrávíkjanleg krafa viðsemjenda

Í bókun meirihlutans segir að um mikilvægan áfanga sé að ræða til að styrkja stöðu og rekstur Hafnarfjarðar. Samkomulagið sé hagsætt bæjarfélaginu í alla staði og um leið traustsyfirlýsing frá lánadrottnum um stjórnun og rekstur bæjarfélagsins. „Samkomulagið er ekki síst ótvíræður vitnisburður um þann árangur sem náðst hefur í fjárhagslegri stjórnun bæjarfélagsins eftir þau áföll sem dundu yfir við efnahagshrunið fyrir liðlega 3 árum. Með góðri samvinnu og samstarfi bæjaryfirvalda, bæjarstarfsmanna og bæjarbúa hefur tekist, þrátt fyrir þröngar aðstæður, að treysta innviði og afkomu bæjarfélagsins sem m.a. sýnir sig í góðri afkomu bæjarsjóðs á því ári sem nú er að líða og enn styrkari stöðu á komandi árum.“

Þá segir að óábyrgur málflutningur einstakra bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á umliðinum mánuðum og misserum, um fjárhagsleg mál bæjafélagsins, hafi síst af öllu verið til að auðvelda þá vinnu sem stjórnendur bæjarsins hafa staðið í við gerð þessa samkomulags. „Staðreyndir skipta meiru en staðleysur og upphrópanir og í þeim efnum talar samkomulagið sínu máli. Ljóst er af umræðu og bókunum bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að samkomulagið veldur þeim sárum vonbrigðum, en það er greinilega af öðrum ástæðum en þeim kjörum sem bæjarfélaginu stendur til boða.“

Þá sé það þannig, að viðsemjendur bæjarins hafi sett fram ófrávíkjanlega kröfu um trúnað um ákvæði samkomulagsins. „Hins vegar hefði núverandi meirihluti gjarnan viljað upplýsa um öll ákvæði þess. Leyndarhyggja núverandi meirihluta er ekki meiri en svo að rætt hefur verið um endurfjármögnun á a.m.k. tuttugu fundum í bæjarráði og bæjarstjórn. Fullyrðingar bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um ólýðræðisleg vinnubrögð standast því enga skoðun.“

Greiða niður lán að fjárhæð 1,4 milljarðar króna.

Í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar fyrir árið 2012 sem var lögð fram á fundi bæjarstjórnar segir að rekstrarniðurstaða A og B hluta sé  jákvæð um 156,7 millj.kr. og rekstrarniðurstaða A hlutans 41,9 millj.kr. „Heildareignir samstæðunnar eru áætlaðar um 44,8 milljarðar kr. í árslok 2012 og skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar um 37 milljarðar kr. og eigið fé er 7,5 milljarðar kr.  Verðmæti lóða að fjárhæð 11 milljarða kr. er ekki í bókum bæjarins en verðmæti þeirra vega á móti langtímalánum bæjarins og lækka þar með áhættuna sem felst í skuldsetningunni.“ Á næsta ári er ráðgert að greiða niður lán að fjárhæð 1,4 millj.kr.

Þá er á það bent að á undanförnum árum hafi verið dregið úr framkvæmdum og fjárfestingum en í áætlun ársins 2012 sé gert ráð fyrir 190 millj.kr., þó er ekki er gert ráð fyrir neinni lóðarsölu í áætlun fyrir árið 2012.

Gert er ráð fyrir hóflegum hækkunum og breytingum á gjaldskrá sveitarfélagsins. Í flestum tilfellum mun hækkunin aðeins fylgja verðlagsbreytingum og hækkun aðfanga og launa.

Seinni umræða um fjárhagsáætlunina fer fram 19. desember nk.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Vilt Þu Aukatekjur
1 ár hysing + .com url + website builder = 25000 isk http://www.extrapaid.com/...
TRAKTORSDEKK
Traktorsdekk rýmingarsala 11.2-24 kr. 35.900. 14.9-24 kr. 49.900. 13.6-24...
Yamaha FJR 1300 2005 ABS
Ekið 28 þús km.Umboðshjól.Skoðað 2013 Hliðartöskur og Topptaska. Nýtt afturdek...
Bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta. Ársreikningar, skattar. Fyrirtæki, einstaklingar...
 
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...