„Pressan gekk of langt“
Steingrímur Sævarr Ólafsson, ritstjóri Pressunnar, hefur sent afsökunarbeiðni á fjölmiðla vegna fréttar og ljósmyndar sem vefmiðillinn birti í gær af stúlku sem hefur lagt fram kæru um nauðgun.
Steingrímur segir að Pressunni hafi orðið á stór mistök í gær. Fréttin hafi verið óvönduð og tillitslaus.
Afsökunarbeiðnin er svohljóðandi:
„Pressunni urðu á stór mistök í gær. Um það er ekki deilt.
Frétt með mynd um unga stúlku sem lagt hefur fram kæru um nauðgun var óvönduð og tillitslaus.
Í afsökunarbeiðni minni fyrir hönd Pressunnar, þegar fréttin var fjarlægð af vefnum, fólst einlæg afsökunarbeiðni og er hún ítrekuð nú. Í henni var hins vegar leitast við að útskýra en alls ekki afsaka hvers vegna fór sem fór. Ásetningurinn var ekki að verja kynferðisofbeldi heldur að upplýsa um málsatvik í aðdraganda brots sem fengið hefur mikla umfjöllun.
Ásetningurinn skilaði sér ekki. Pressan gekk allt of langt og tók ekki tillit til málsaðila.
Afsökunarbeiðnin skilaði sér heldur ekki. Því er hún endurtekin svo að enginn velkist í vafa um að hún er sett fram í fyllstu einlægni.
Sem ritstjóri Pressunnar ber ég ábyrgð á öllum skrifum á miðlinum og þar af leiðandi á þessum stóru mistökum. Pressan tekur þau mjög alvarlega. Það vita lesendur að hún hefur gagnrýnt harðlega kynferðisbrotamenn og stutt einarðlega við bakið á fórnarlömbum kynferðisofbeldis með margvíslegum hætti og fjölmörgum fréttum.
Mistökin, sem ég, bæði sem ritstjóri og faðir, harma af öllu hjarta eru því ekki vottur um ritstjórnarstefnu Pressunnar. Þvert á móti. Þetta er alls ekki líkt okkur.
Ef ég gæti tekið þennan atburð til baka, þá myndi ég svo sannarlega gera það. Ég get hins vegar fullvissað lesendur Pressunnar um það að hún hefur dregið lærdóm af þessu máli.
Öllum þeim, sem Pressan brást, einkum hlutaðeigendur, bið ég forláts á birtingu þessarar fréttar.
Ég biðst afsökunar.“
Innlent »
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Varað við lúmskri ísingu
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Aftur til stjórnlagaráðs
- Vill ESB-tillögu á dagskrá
- Nokkur fjöldi mála í athugun
- Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Miðvikudagur, 7. desember 2011, Innlent Biðst afsökunar á myndbirtingu
- Fimmtudagur, 30. desember 2010, Innlent Völdu Ólaf Ragnar Íslending ársins
- Þriðjudagur, 21. desember 2010, Innlent Laus gegn tryggingu
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Innlent Forstöðumaður Krossins sakaður um kynferðislega áreitni
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi




































