Vefpressan höfðar mál

Björn Ingi Hrafnsson er útgefandi Vefpressunar.
Björn Ingi Hrafnsson er útgefandi Vefpressunar.

Vefpressan ehf. mun fela lögmönnum að höfða mál á hendur einstaklingum sem fyrirtækið segir að hafi staðið fyrir herferð undanfarna daga í því skyni að fá fyrirtæki til að hætta að auglýsa á miðlum þess.

Þetta kemur fram á fréttavefnum Pressunni, sem Vefpressan á og rekur.

Þar segir að einnig standi  til að höfða meiðyrðamál gegn einstaklingum sem hafi viðhaft ærumeiðandi ummæli undanfarna daga, búið til falskar vefsíður og sagt forsvarsmenn Pressunnar „nauðgaravini“ og „stuðningsmenn nauðgara“ svo dæmi séu tekin.

Þá er því haldið fram að sérfræðingur í efnahagsráðuneytinu hafi m.a. staðið fyrir undirskriftasöfnun þar sem fólk sé hvatt til að sækja ekki miðla Vefpressunnar. Einnig segir að borgarfulltrúi Vinstri grænna hafi beitt sér í samtölum við fyrirtæki í þeim tilgangi að valda Vefpressunni fjárhagslegu tjóni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert