Ekki verið að skattleggja lífeyrissjóði til frambúðar
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir það mikinn misskilning að það standi til að skattleggja lífeyrissjóði í hefðbundnum skilningi til frambúðar í þágu tekjuöflunar inn í ríkissjóð.
„Það dettur engum það í hug,“ sagði Steingrímur þegar hann var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni.
Steingrímur segir að verið sé að skapa lögformlegan grunn undir það að lífeyrissjóðirnir skili sínu í stóra samkomulagið um skuldalækkunaraðgerðirnar frá því í desember í fyrra. Þá hafi náðst samkomulag á víðtækum grunni milli stjórnvalda, fjármálastofnana, banka og lífeyrissjóða um tilteknar aðgerðir.
Hinn almenni þáttur aðgerðanna hafi verið að stórauka peninga í vaxtaniðurgreiðslur. „Upp á sex milljarða hvort árið 2011 og 2012. Og það var alltaf gengið út frá að þann kostnað tækju bankarnir og lífeyrissjóðirnir á sig. Ríkið legði sitt af mörkum í gegnum peninga inn í Íbúðalánasjóð. Þangað settum við jú 33 milljarða í desember í fyrra,“ sagði Steingrímur.
Hann segir að ekki hafi náðst samstaða hjá lífeyrissjóðunum um útfærslu á þessum greiðslum. „Þess vegna var ekkert úrræði eftir annað en það, sem þeir vissu alltaf að gæti orðið þrautalendingin, að afla þessara tekna frá þeim í gegnum lögformlega eða lögþvingaða innheimtu. Það er þetta sem er verið að gera til að tryggja að þetta stóra samkomulag haldi og til að tryggja að tugir þúsunda fjölskyldna fái þessar miklu vaxtaniðurgreiðslur á næstu árum,“ sagði Steingrímur.
„Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að þetta samkomulag springi í loft upp. Jafnvel með þeim afleiðingum að það verði engar vaxtaniðurgreiðslur á næsta ári,“ bætti hann við.
Þetta sé veruleikinn. Ekki sé hægt að ætlast til þess að aðrir aðilar standi við þetta ef lífeyrissjóðirnir hverfi alveg út úr þessu. „Það er mikið í húfi að þetta takist,“ sagði Steingrímur.
Bloggað um fréttina
-
-
Guðni Karl Harðarson Guð hjálpi Íslandi! -
Sigurður Antonsson Vaxtabætur, óþörf ríkisútgjöld -
Sigurjón Benediktsson Til að við getum greitt okurvexti bankanna!!!
Innlent »
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 7. júní 2011, Innlent Ræða við ASÍ um lífeyrisskatt
- Laugardagur, 4. júní 2011, Innlent „Áttum ekki von á þessu“
- Föstudagur, 30. desember 2011, Innlent Ekkert tap af eign í bönkunum
- Þriðjudagur, 15. febrúar 2011, Innlent Styður ekki þjóðaratkvæði um Icesave
- Laugardagur, 23. apríl 2011, Innlent Fjárfesting í pípunum
-
Costa Concordia björgun
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina




































