Nýtt fólk meldar sig daglega
Heiða Helgadóttir fylgist með Guðmundi Steingrímssyni opna nýja vefsíðu flokksins, en þau héldu blaðamannafund í vikunni til að kynna nýja flokkinn.
Þingmaðurinn Guðmundur Steingrímsson, sem stendur að stofnun nýs stjórnmálaflokks ásamt Besta flokknum, segir að á annað þúsund tillögur hafi borist um nafn á flokkinn, sem hyggst bjóða fram í næstu alþingiskosningum. Þá segir hann að nýtt fólk meldi sig í flokkinn á hverjum degi.
Guðmundur segir í pistli á bloggsíðu sinni að tillögurnar hafi borist í stríðum straumum. „Þær eru orðnar vel á annað þúsund. Einhverjir eru pirraðir og senda skæting. Langflestir — 99% — senda hins vegar einlægar og vel hugsaðar tillögur. Það verður mikill vandi að velja,“ skrifar hann.
Þá segir Guðmundur að það sé ákveðinn hópur í samfélaginu sem virðist alltaf halda því fram, alveg sama hversu oft maður segi skoðanir sínar á helstu málum, að maður hafi samt enga stefnu.
„Hvað er þá stefna? Er það ekki stefna að vilja klára aðildarviðræður, að vilja taka upp aðra mynt, að vilja selja raforku hærra verði og græða þar með á orkuauðlindunum loksins, að vilja að nýja stjórnarskráin fari fyrir dóm þjóðarinnar, að vilja tryggja að þjóðin fái meiri arð af sjávarauðlindinni, að vilja einfaldara regluverk utan um atvinnuvegina, setja fé í nýsköpunarsjóði, skapandi greinar, grænan iðnað … etc.,“ skrifar Guðmundur.
Þá sé það líka stefna að vilja tala öðruvísi um pólitík og stunda hana öðruvísi. Tala ekki illa um hina og vera ekki í keppni við hina. Vera jákvæð.
Guðmundur segir að það muni koma fram á næsta fundi hverjir aðrir séu á bak við framboðið. „Stærsti hópurinn er hópur fólks sem hefur ekki komið nálægt stjórnmálum áður, en getur núna hugsað sér það. Og nýtt fólk meldar sig á degi hverjum,“ segir Guðmundur.
Loks segir Guðmundur að sú spurning hafi verið borin upp hvort þetta nýja stjórnmálaafl sé grínframboð.
„Það finnst mér góð spurning. Mér finnst að allir flokkar ættu að þurfa að svara henni,“ segir Guðmundur í niðurlagi greinarinnar.
Bloggað um fréttina
-
Árni Gunnarsson Vill ganga frá aðlögun að ESB -
Sigurður Þórðarson Auglýst eftir atkvæðum fyrir erfðaprins -
Jón Baldur L'Orange Bakherbergið heillar -
Jón Aðalsteinn Jónsson Lausnaraflið eða ? -
Óðinn Þórisson Samfylkingin 2 -
Sleggjan og Hvellurinn Guðmundur er með stefnu. -
Ómar Bjarki Smárason Frjálsræðisflokkurinn -
Jóhannes Ragnarsson Þúveist þúveist. Innihald ekkert. Nýttnýtt nýttnýtt -
Jóhann Elíasson GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON & CO HAFA EITT STEFNUMÁL................ -
ÞJÓÐARSÁLIN HEIÐArlegi flokkurinn
Innlent »
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 3. desember 2011, Innlent Gríðarlegur áhugi á framboðinu
- Sunnudagur, 11. desember 2011, Innlent Leið illa í Framsókn
- Fimmtudagur, 8. desember 2011, Innlent Nýtt nafnlaust stjórnmálaafl
- Mánudagur, 22. ágúst 2011, Innlent Segir Jóhönnu vera guðmóður nýs flokks
- Fimmtudagur, 8. desember 2011, Innlent Kannski fleiri en einn formaður
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi




































