Tugir milljarða í húfi

Sérstakur saksóknari. stækka

Sérstakur saksóknari. mbl.is/Ómar

Alls eru 182 mál í rannsókn embættis sérstaks saksóknara. Um 100 mál tengjast hruninu beint, að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara.

Hrunmálin eru öll frekar stór og eru peningaþvættismálin meðal þeirra stór og mynda regnhlíf yfir önnur mál. Brotin eru mjög umfangsmikil og þeir fjármunir sem þeim tengjast hlaupa á tugum milljarða. Meðal annars hafa peningar verið kyrrsettir í Lúxemborg en Ólafur Þór vildi ekki fara nánar í það í Kastljósi í kvöld vegna rannsóknarhagsmuna.

Ólafur Þór sagði í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld að hann væri mjög sáttur við framkvæmdina við rannsókn embættisins en nokkur vandi væri að forma rannsóknina í einhverjum tilvikum þar sem rannsóknir af þessu tagi hafa ekki komið til kasta hins opinbera áður. Búast mætti við því að línur skýrðust á næsta ári í þeim málum sem er verið að rannsaka í tengslum við viðskiptabankana þrjá, Glitni, Landsbankann og Kaupþing. Rannsókn á Kaupþingi er komin lengst en ekki er víst að því máli ljúki fyrst.

Sérstakur saksóknari á von á því að næsta ár verði stórt hvað varðar lok mála en árið 2014 verði embættið komið fyrir vind í að ljúka rannsókn mála og ákvarða hvort ákært verði eða mál felld niður.

Í Glitnisrannsókninni voru á annað hundrað yfirheyrslur á nokkrum dögum auk þess sem farið er yfir símaupptökur og fleira.

Í einu málinu sem til rannsóknar er hjá embættinu eru um fimm milljónir gagna tengdar  rannsókninni en meðal annars hafa símar verið hleraðir og farið yfir gríðarlegt magn tölvupóstsamskipta.

Ólafur Þór segir að ekki séu miklar gloppur í þeim gögnum sem eru til staðar en slíkt hefur að vísu gerst í einstaka málum. Hins vegar virðist sem gögn hafi verið sett inn eftir á. Embættið hefur grun um að menn hafi verið að bera sig saman áður en þeir eru yfirheyrðir og það sýni símahleranir fram á.

Símahleranir embættisins voru ræddar á Alþingi á sínum tíma og segir Ólafur Þór að slíkar hleranir byggist á að viðkomandi viti ekki af því. Þeir sem hlut áttu að máli voru að hans mati grandalausir fyrir því að embættið beitti slíkum aðferðum en eftir að upplýst var um það opinberlega hafa símhleranir ekki nýst sem skyldi.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Spáð er hríðaveðri á fjallvegum í kvöld.

Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi

14:09 Vaxandi hríðarveður er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Á láglendi nær hins vegar víðast að hlána í dag. Meira »
Verði drögin samþykkt orðrétt er ljóst að trúar- og lífsskoðunarfélög fá ekki að stunda starfsemi ...

Reglur ræddar í Hafnarfirði

14:07 Drög að reglum um samskipti leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarfélög voru lögð fyrir fræðsluráð Hafnarfjarðar fyrr í vikunni. Drögin eru samljóma reglum sem samþykktar voru í Reykjavík, og segir í þeim að trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana eigi ekki heima í skólum. Meira »

Rán framið á Akureyri

Spilakassar.
14:02 Rán var framið á spilastað Gullnámunnar við Geislagötu á Akureyri um hádegisbil í dag. Þetta staðfesti lögreglan á Akureyri en varðist að öðru leyti allra frétta af málinu. Meira »

Skoði betur kaflann um forsetann

Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
13:34 Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis ætlar að senda stjórnlagaráði, sem kemur saman 8. mars, nokkrar spurningar sem hún vill að ráðið ræði. Ein af þeim er varðandi stöðu forseta Íslands. Meira »

Gagnrýnir skamman fyrirvara

Örn Bárður Jónsson, prestur og fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
13:18 „Ég gerði mér vonir um að Alþingi færi rækilega yfir þessar tillögur og skrifaði síðan um þær álit. Ég gerði hins vegar alveg eins ráð fyrir því að hópurinn yrði kallaður saman til skrafs og ráðagerða,“ segir Örn Bárður Jónsson, prestur og einn fulltrúa í stjórnlagaráði. Meira »

WOW air notar Airbus-vélar

Önnur véla WOW er merkt Wow Force One.
14:01 WOW air undirbýr sig nú fyrir komandi sumar en félagið mun hefja áætlunarflug til 13 áfangastaða í Evrópu í júní. Flugfloti WOW air samanstendur af tveimur Airbus A320 168 sæta flugvélum. Vélarnar eru leigðar frá félaginu Avion Express. Önnur vélin er merkt WOW Force One með fjólubláum stöfum sem er einkennislitur WOW air. Meira »

Draga hækkun til baka

Frá Patreksfirði.
13:26 Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt að draga til baka hækkun á leikskólagjöldum sem sett var á um áramótin og fella niður innritunargjald í félagsstarfi aldraðra. Meira »

Klára málið í næstu viku

Valgerður Bjarnadóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
13:11 Ef Alþingi vísar máli gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, frá verða gögn sem safnað hefur verið saman vegna málshöfðunarinnar send á Þjóðskjalasafnið til varðveislu. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd reiknar með að afgreiða tillögu um afturköllun málsmeðferðar í næstu viku. Meira »

Segir rangt farið með málsatvik

Jón Baldvin Hannibalsson.
13:11 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra segir að ekki sé rétt farið með málsatvik í umfjöllun í Nýju lífi þegar því er haldið fram að hann hafi átt samskipti við vændiskonur er hann var í opinberum erindagjörðum í Tallin. Meira »

Afgreiðsla ekki í samræmi við lög

12:27 Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði ríkissaksóknara um að tilgreina beri ástæður þess að óskað sé eftir gögnum í máli sem er lokið, eigi sér ekki stoð í lögum. Er þeim tilmælum beint til embættisins að það endurskoði ákvæði þess efnis. Meira »

Börn og unglingar í óhamingjugildru

12:32 Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau,“ segir dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, Rannsóknarstofnunnar í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Meira »

Baðst afsökunar fyrir 12 árum

Jón Baldvin Hannibalsson.
12:17 „Ég hef ekki séð blaðið og veit ekki hvað stendur í því,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, um umfjöllun í Nýju lífi þar sem systurdóttir eiginkonu hans segir frá bréfum sem hann sendi henni er hún var á unglingsaldri. Meira »

Hundarnir finna dópið strax myndskeið

230212 logguhundar
12:00 Undanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar. Meira »

Gerir alvarlegar athugasemdir

Salvör Nordal, fyrrverandi formaður stjórnlagaráðs.
11:52 Fram koma alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá í bréfi fyrrverandi formanns ráðsins, Salvarar Nordal, til forsætisnefndar þingsins í kjölfar þess að samþykkt var á Alþingi í gær að vísa málinu til ráðsins á ný. Meira »

Telja neytendur eiga betri rétt

11:36 Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm um gengistryggð lán. Leggja samtökin til að Samtök fjármálafyrirtækja verði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang. Meira »

Ummerki um olíu frá Júratímabilinu

Drekasvæðið.
11:54 Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkustofnunar. Meira »

D-vítamínbætt mjólk á markað

D-vítamínbætt léttmjólk.
11:44 Mjólkursamsalan, MS, hefur á næstu dögum sölu á D-vítamínbættri léttmjólk. Er það gert samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala. Meira »

Unnur Brá: Eina lausnin?

Unnur Brá Konráðsdóttir
11:33 „Svo virðist sem forsætisráðherra hafi aðeins eitt svar við öllum spurningum og eina lausn á öllum vanda, það er að Ísland gangi í ESB og taki upp evru", segir Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HÓTELHÚSGÖGN
HÓTELHÚSGÖGN NÝVAKI s. 557-2530 korpudalur@centrum.is...
Úrahringir
Hringirnir eru teygjanlegir og passa því á allar fingrastærðir og með áföstu lit...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
Nuddbekkir - Breiður og Sterkur 67.000
Nuddbekkur- Sterkur-Fallegur-Endingagóður. 1.92*81cm Tilboð 67.000. Allt á mynd ...
 
Hlutabréf til sölu í útflutningsfyrirtæki

Hlutabréf til sölu í útflutningsfyrirtæk...
Stúkan edda
Félagsstarf
l EDDA 6012022119 III...
Hjálpræðisherinn kjallarinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudagur kl. 20 Un...
Tölvunarfræðingur - forritari
Tölvur/upplýsingatækni
Tölvunarfræðingur - forritari Námsgag...