Flughálka á vegum

Búast má við allhvössu veðri af norðaustri með skafrenningi og fjúki. stækka

Búast má við allhvössu veðri af norðaustri með skafrenningi og fjúki. mbl.is/Ómar

Vegagerðin hefur sent frá sér aðvörun um flughálku á vegum víða á suðausturströnd landsins og einnig sumstaðar á Austur- og Norðausturlandi og eru vegfarendur beðnir um að sýna sérstaka aðgát.

Hálka og skafrenningur er á  Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víða einhver hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Hálkublettir og skafrenningur er á Reykjanesbraut og hálkublettir eða hálka er víða á Suðurnesjum og hálka og þæfingur á
Suðurstrandarvegi, skv. yfirliti Vegagerðarinnar.

Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir víðast hvar. Snjóþekja og skafrenningur er frá Borgarnesi að Hvalfjarðargöngum. Þæfingsfærð er á Laxárdalsheiði. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Ófært er á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er hálka og hálkublettir á flestum leiðum. Hálka, snjóþekja og skafrenningur er á flestum fjallvegum. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Kleifaheiði og Klettshálsi. Ófært er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði.

Á Norðvesturlandi er hálka og skafrenningur í Húnavatnssýslum, eins á Vatnsskarði en snjóþekja og skafrenningur á Þverárfjalli og í Skagafirðinum en snjóþekja, hálka og éljagangur á flestum öðrum leiðum. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Siglufjarðarvegi.

Á Norðausturlandi er snjóþekja og skafrenningur á Öxnadalsheiði og hálka og éljagangur í Eyjafirðinum. Snjóþekja og skafrenningur er á Víkurskarði.  Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hólasandi. Flughálka er frá Þórshöfn að Hálsum. Hálka og skafrenningur er á Mývatnsöræfum.

Á Austurlandi er hálka og skafrenningur á Fjarðarheiði og Fagradal. Flughált er á Borgarfjarðarvegi og þungfært og skafrenningur á Vatnsskarði eystra. Á öðrum leiðum er hálka eða snjóþekja. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi.

Á Suðausturlandi er flughálka og hálka á aðalleiðum.
Flughálka er nú víða á suðausturströnd landsins og einnig sumstaðar á Austur- og Norðausturlandi samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar í kvöld og eru vegfarendur beðnir um að sýna sérstaka aðgát.

Hálka og skafrenningur er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víða einhver hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Hálkublettir og skafrenningur er á Reykjanesbraut og hálkublettir eða hálka er víða á Suðurnesjum og hálka og þæfingur á Suðurstrandarvegi, skv. upplýsingum Vegagerðarinnar.

Frystir aftur í kvöld suðvestan- og sunnanlands

Samkvæmt ábendingu veðurfræðings á Veðurstofunni frystir í kvöld suðvestan- og sunnanlands. Þá má búast við allhvössu veðri af norðaustri með skafrenningi og fjúki, einkum þó á fjallvegum. Seint í nótt og í fyrramálið er spáð vaxandi hríð með lélegu skyggni á Norðurlandi og Vestfjörðum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Góður hrossaskítur í garðinn
Er á höfuðborgarsvæðinu. Þú getur sótt frítt eins og þú vilt, eða ég komið með k...
Honda Civic ES 2006
Honda Civic ES árgerð 2006 svartur. Ekinn aðeins 61 þús. sjálfskiptur, topplúga,...
Rafskutla til sölu
Til sölu ónotuð rafskutla. Hentaði ekki viðkomandi einstaklingi. Verð: 295.000...
Slökkvitæki fyrir bíla á ótrúlegu verði
Vegna magninnkaupa bjóðum við nokkrar gerðir slökkvitækja á ótrúlegu verði í tak...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...