Engar líkur á að gripið verði til refsiaðgerða

Tómas H. Heiðar er aðalsamningamaður Íslands í viðræðum um makrílveiðar. stækka

Tómas H. Heiðar er aðalsamningamaður Íslands í viðræðum um makrílveiðar. mbl.is/Golli

Tómas H. Heiðar, aðalsamningamaður Íslands í viðræðum um makrílveiðar, segir að framkvæmdastjórn  ESB ætti fremur að verja kröftum sínum í að stuðla að samkomulagi um stjórn makrílveiðanna en ýja að innflutningsbanni og öðrum viðskiptaaðgerðum sem fari í bága við alþjóðlega viðskiptasamninga.

Þetta kemur fram í svari Tómasar við þeirri tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að samþykkt verði reglugerð sem geri ESB kleift að beita þjóðir refsiaðgerðum sem stunda ósjálfbærar fiskveiðar og standa utan ESB. M.a. er rætt um innflutningsbann.

„Ég  tel að framkvæmdastjórn ESB ætti fremur að verja kröftum sínum í að stuðla að samkomulagi um stjórn makrílveiðanna en ýja að innflutningsbanni og öðrum viðskiptaaðgerðum sem fara í bága við alþjóðlega viðskiptasamninga.  Á  fundi strandríkjanna fjögurra í Clonakilty í síðustu viku lögðu ESB og Noregur fram tillögu um skiptingu makrílkvóta milli aðila sem fól í sér stórt skref aftur á bak frá undanförnum fundum. Tillagan olli okkur miklum vonbrigðum, enda höfum við  lagt ríka áherslu á að ná samkomulagi til að tryggja sjálfbærar makrílveiðar og koma í veg fyrir frekari  ofveiði úr stofninum sem allir aðilar bera sameiginlega ábyrgð á,“ segir Tómas.

Hann segir að samkvæmt lögum nr.  22/1998,  um  veiðar  og  vinnslu  erlendra  skipa í fiskveiðilandhelgi  Íslands, sé erlendum  skipum,  sem  stundi veiðar úr sameiginlegum fiskistofnum sem ekki sé samkomulag um stjórnun á, óheimilt að landa  slíkum afla í íslenskum höfnum. Erlendum fiskiskipum sé samkvæmt því  óheimilt  að landa makríl í íslenskum höfnum. Slíkt löndunarbann eigi sér stoð  í  EES-samningnum og Noregur  hafi  sett  sams konar bann. Íslensk stjórnvöld  geri  að sjálfsögðu  ekki  athugasemd við að sams konar reglur gildi  um  löndun íslenskra fiskiskipa í erlendum höfnum og gildi um löndun erlendra  fiskiskipa  hér, enda sé um að ræða afla úr sameiginlegum stofnum sem  ekki  sé  samkomulag um stjórnun á. Í þessu sambandi sé raunar vert að hafa í huga  að  makrílveiðar  íslenskra  skipa  fari eingöngu fram innan íslensku  efnahagslögsögunnar  og öllum afla hafi verið landað í íslenskum höfnum og hann unninn hér á landi.

„Hins vegar er alveg ljóst að innflutningsbann og aðrar slíkar viðskiptaaðgerðir eiga sér enga stoð í og brjóta í bága við EES-samninginn, EFTA-samninginn og WTO-samninginn. Ég tel því engar líkur á að gripið verði til slíkra aðgerða.

Engin  ákvörðun hefur verið tekin um framhald makrílviðræðna og að óbreyttu verður  hlutdeild  Íslands  í  veiðunum  á  næsta ári áfram um 16%. Ekki er útilokað  að gerð verði úrslitatilraun til að ná samkomulagi en ljóst er að ESB  og  Noregur  þurfa  að endurskoða  afstöðu  sína vel og vandlega eigi einhver von að vera um árangur á slíkum lokafundi,“ segir Tómas.

Hægt verði að beita refsiaðgerðum

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

BYKO.

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Svartir sauðir á hálendinu

Landmannalaugar
16:27 Stjórn Ferðafélags Íslands íhugar að loka öllum skálum félagsins yfir vetrartímann vegna slæmrar umgengni í þeim. Um liðna helgi voru þrír hópar í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum og var lítill svefnfriður í skálanum vegna skrílsláta eins hópsins. Meira »

Vilja starfshóp um póstverslun

Íslandspóstur.
16:03 Ellefu þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela forsætisráðherra að setja á fót starfshóp sem athugi þróun og regluverk í póstverslun hér og erlendis og geri tillögur um lagabreytingar og aðrar ráðstafanir til að skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Mæling á PSA ekki áreiðanleg

Krabbameinsrannsóknir.
16:16 Mæling á PSA-mótefni í blóði gefur ekki nægilega áreiðanlegar upplýsingar til að hægt sé að mæla með aðferðinni til skimunar eftir krabbameini í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlækni. Meira »

Icesave hefði sett Ísland á hausinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
16:00 Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlausson, sagði á Alþingi í dag að skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána staðfesti það, væru forsendur hennar réttar, að ef Icesave-samningarnir sem ríkisstjórnin hefði reynt að koma í gegn hefðu verið samþykktir hefði það leitt til gjaldþrots íslenska ríkisins. Meira »

Tíðinda að vænta innan tíu daga

Huang Nubo
15:49 „Ég vona að við munum hafa einhver tíðindi innan tíu daga,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, spurður um mögulegar fjárfestingar kínverska fjárfestisins Huang Nubo á Norðausturlandi. Hann bætir við að rík áhersla sé lögð á að sem mest sátt náist um málið. Meira »

Lagði mat á vegslóða

Utanvegaakstur er vaxandi vandamál.
15:33 Akstur utan óskilgreindra vega er alvarlegt vandamál hér á landi. Til hefur orðið víðáttumikið kerfi vegslóða án þess að farið hafi verið eftir skipulagsferlum. Gísli Rafn Guðmundsson, nemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands vann síðastliðið sumar verkefni sem ber heitið „Skipulagsferlar og matsskalar vegna vegslóða“. Meira »

Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð

15:46 Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu. Um samstarfsverkefni Þjóðskrár og Íbúðalánasjóðs er að ræða en sjóðurinn á 700 leiguíbúðir. Meira »

Rannsókn nauðgunarmála lokið

Egill Einarsson
15:31 Rannsókn lögreglu höfuðborgarsvæðisins á nauðgunarkærum á hendur Agli Einarssyni er lokið. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, staðfesti þetta við fréttavef Morgunblaðsins. Málið er því að nýju komið ákærusviðs lögreglunnar. Meira »

Óljóst um hvað málið snýst

Þórhildur Þorleifsdóttir, fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
15:06 „Hvað það varðar að við komum að þessu aftur þykir mér það alls ekki afleit hugmynd,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir, sem sæti átti í stjórnlagaráði á síðasta ári, en Alþingi ákvað í gær að vísa frumvarpi ráðsins að nýrri stjórnarskrá aftur til þess til umfjöllunar. Meira »

Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi

Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar skrifuðu undir samning ...
14:25 Í hádeginu í dag skrifuðu þeir Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar undir samning um Atvinnutorg í Hafnarfirði. Meira »

Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi

Spáð er hríðaveðri á fjallvegum í kvöld.
14:09 Vaxandi hríðarveður er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Á láglendi nær hins vegar víðast að hlána í dag. Meira »

Selur fylgist með skútunum

Myndarlegur selur heldur til við skútubryggjuna á Ísafirði.
14:52 Segja má að nýr hafnarvörður sé tekinn til starfa við skútubryggjuna á Ísafirði en þar hefur myndarlegur selur haldið sig síðustu daga. Selurinn tekur lífinu með ró og kippir sér lítið upp við umferð mannfólksins á höfninni. Meira »

Þremur sagt upp hjá Becromal

Verksmiðja Becromal á Akureyri.
14:23 Þremur starfsmönnum Becromal á Akureyri var sagt upp störfum í gær. Sex starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp störfum um síðustu mánaðamót. Meira »

Reglur ræddar í Hafnarfirði

Verði drögin samþykkt orðrétt er ljóst að trúar- og lífsskoðunarfélög fá ekki að stunda starfsemi ...
14:07 Drög að reglum um samskipti leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarfélög voru lögð fyrir fræðsluráð Hafnarfjarðar fyrr í vikunni. Drögin eru samljóma reglum sem samþykktar voru í Reykjavík, og segir í þeim að trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana eigi ekki heima í skólum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Terrano II ´97
Mjög góður Terrano II til sölu sjá nánar hér... http://www.jakinn.is/?vara=terra...
Land Cruiser 120 GX 33" 2006 ekinn 86 þ.
100% þjónusta, slatti af aukahlutum, 2 eigendur. Toppeintak! Ásett 4.990, tilb...
MISTY
STÓRflottir Teg. MAGGIE - Sérlega haldgóðir, fáanlegir í E - JJ skálum á kr. 10....
TILBOÐ Á 13 TOMMU VETRARDEKKJUM
Tilboð á 13 tommu vetrar- dekkjum 155 R 13 kr. 7900. 165 R 13 kr...
 
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma sunnudag kl. 17 Ágúst Val...
Sérfræðingur
Sérfræðistörf
Starfsgreinasamband Íslands er stærsta l...
Fm radion broadcast transmitters - band ii

INVITATION TO TENDER no. 14739 FRAM...
Flugvirkjar (framtíðarstarf) - flugfreyjur/þjónar (sumarstörf)
Ferðaþjónusta
GRÍMSEY ÞÓRSHÖFN ÍSAFJÖRÐUR VOP...