Mikilvægur áfangi fyrir Palestínu

mbl.is Hallur Már - hallurmar@mbl.is

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, afhenti Riad Malki utanríkisráðherra Palestínu formlega viðurkenningu Íslands á sjálfstæði og fullveldi Palestínu við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í morgun.

Össur sagði við þetta tækifæri, að einkar ánægjulegt væri að enginn hafi greitt atkvæði gegn ályktuninni á Alþingi um að íslenska ríkisstjórnin viðurkenndi fullveldi Palestínu.

Malki segir að viðurkenning Íslands hafi mikla þýðingu fyrir baráttu Palestínumanna, sérstaklega í ljósi þess að Ísland sé hluti af Evrópu og með þessu sýni Íslendingar samstöðu með palestínsku þjóðinni. Eftir þessu væri tekið, ekki síst þar sem umræða um málefni Palestínumanna hefði að nokkru leyti dottið niður. Þetta væri vottur um einlægan stuðning sem gangi þvert á pólitískar skoðanir sem palestínsku þjóðinni þykir vænt um og viðurkenningin sé í því ljósi ólík öðrum stuðningsyfirlýsingum sem Palestína hefur fengið í gegn um tíðina.

Malki segir það jafnframt merkilegt að Amal Tamimi fyrsta konan af erlendum uppruna til að taka sæti á Alþingi skuli koma frá Palestínu og hann vonast til að vera hennar á þingi geti orðið til að styrkja samband ríkjanna.

Í orðsendingu sem utanríkisráðherra Íslands afhenti Dr. Malki kemur fram að samkvæmt ályktun Alþingis frá 29. nóvember 2011 hafi íslensk stjórnvöld frá og með 15. desember 2011 viðurkennt Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki innan landamæranna frá því fyrir sex daga stríðið árið 1967.

Dr. Malki sagði samband Íslands og Palestínu einstakt og bar íslenskum stjórnvöldum, Alþingi og íslensku þjóðinni þakkir forseta síns og palestínsku þjóðarinnar. Hann sagði ákvörðun Íslands miklu skipta þar sem nú væri Palestína viðurkennd í fyrsta sinn af ríki í vestur- og norðurhluta Evrópu. Hann vænti þess að þetta hefði áhrif á aðrar þjóðir sem vonandi feti í fótspor Íslands sem myndi hafa jákvæð áhrif á friðarumleitanir og öryggi í Mið-Austurlöndum. Þá sagði hann 130 ríki nú viðurkenna Palestínuríki sem sé mikil hvatning fyrir Palestínumenn að halda áfram uppbyggingu sjálfstæðs lýðræðisríkis. Dr. Malki sagði að Palestínumönnum muni ávallt verða minnisstætt að samþykkt Alþingis átti sér stað hinn 29. nóvember sem er alþjóðlegur samstöðudagur með palestínsku þjóðinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Flugmiðar á frábæru verði til Alicante fram og tilbaka
Vegna forfalla eru til sölu flugmiðar fyrir fjóra til Alicante báðar leiðir. Br...
Gallerí Voff -Hundaskóli sem skilar árangri í 20 ár
Gallerí Voff er eini hundaskólinn á landinu sem er viðurkenndur af umhverfisstof...
Bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta. Ársreikningar, skattar. Fyrirtæki, einstaklingar...
Starcraft Fellihýsi með fortjaldi
Til sölu Starccraft Fellihýsi 9 ft árg 2000 ásamt nýlegu forjaldi ásett verð 69...
 
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...